Ævintýri í Morocco
12. - 22. maí 2012
Fararstjóri: Trausti Hafsteinsson
Einstakt tækifæri til að líta stundarkorn inn í nýjan heim og kynnast nokkrum völdum stöðum í Marokkó. Allt hefur þetta yfirbragð hins ókunna en er jafnframt töfrum þrungið og hefur framandi keim í loftinu. Það er upplifun að koma til Marokkó ekki bara að sögulegum forsendum heldur líka til að kynnast landi og þjóð örlítið nánar í þessari átta daga ferð um Norður Afríku.
12. maí
Flogið í beinu flug með Icelandair til Jerez á Suður-Spáni Brottför kl. 08:00 og lent þar kl. 14:20 að staðartíma. Ekið frá flugvelli á hótel í Jerez og gist þar í eina nótt. Kvöldverður á hótelinu.
13. maí
Eftir morgunverð er ekið sem leið liggur suður til borgarinnar Algeciras, sem er syðst á Spáni (um 100 km). Þar verður gist í eina nótt. Eftir hádegi er haldið í kynnisferð til Gíbraltar sem eru skammt frá. Skemmtileg ferð þar sem farþegar kynnast lífi eyjarskeggja á þessum sérkennilega kletti sem er bæði enskur og spænskur. Muna að hafa með sér vegabréf í þessa kynnisferð. Kvöldverður á hótelinu í Algeciras.
14. maí
Eftir morgunverð er ekið til hafnarborgarinnar Tarifa en þaðan er siglt með hraðferju yfir Gíbraltarsundið, frá Evrópu til Afríku, til Ceuta í Marokkó. Ferðin tekur um 40 mínútur. Frá Ceuta er ekið í geng um fiskimannaþorpin Asilah og Larache sem standa á vesturströnd Morocco. Síðan haldið áfram til Fes þar sem gist verður í 2 nætur. Kvöldverður á hótelinu. Áætlaður akstur frá Ceuta til Fes er um 300 km.
15. maí
Eftir morgunverð er haldið í kynnisferð um Fes. Í borginni sem er m.a. miðstöð íslam, eru háheilagar moskur, konungshallir og margt fleira merkilegt að skoða og upplifa. Síðdegis er ekið til borgarinnar Meknes (um 60 km). Á 17. öld var Meknes höfuðborg landsins og þar voru reistar glæsibyggingar svo borginni var líkt við Versali. Kynnisferð og haldið til baka til Fes þar sem kvöldverður og gisting bíður.
16. maí
Í dag kynnumst við menningu og náttúru stórs hluta landsins á ferðalagi okkar í suðurátt yfir frekar gróðursnautt landslagið um borgin Beni Mellal, og alla leið til Marrakech sem er eirns og vin í eyðumörkinni – afar falleg og gróðursæl borg. Gist þar í 3 nætur. Áætlaður akstur um 450 km.
17. maí
Eftir morgunverð er kynnisferð um Marakech sem stundum er kölluð “gimsteinn Atlasfjalla” eða “rauða borgin”. Hún er umlukin 10 þúsund pálmatrjám og þar eru margar fallegar og sögulegar byggingar og áhugaverðir staðir. Frjáls tími síðdegis til að skoða sig um í miðborginn og á hinu sögufræga torgi Djemma el Fna. Þar er markaðurinn og þar selja heimamenn hinu ótrúlegust hluti . Ávallt mikið líf og fjör mikið verslað og prúttað. Á kvöldin breytist torgið og götulistamenn koma fram og leika listir sínar og útiveitingahús spretta upp.
18. maí
Frjáls dagur í Marrakech. Marrakesh höfuðborg Suður-Marokkó er einstaklega fögur borg. Gamli borgarhlutinn innan borgarmúranna er í senn heillandi og spennandi með sínum hlykkjóttu þröngu götum. Frakkar sem réðu borginni á síðustu öld settu svip sinn á nýrri hluta borgarinnar með glæsilegum breiðstrætum, fögrum byggingum, verslunum, veitingahúsum og kaffihúsum. Helsta tákn borgarinnar er kallturninn við Koutoubiamoskuna. Þar eru sögufrægar hallir með hallargörðum, listasafn og glæsilegir veitingastaðir. Marrakesh er allt í senn gömul og ný, heit og köld en umfram allt ógleymanleg öllum hingað koma. Um kvöldið er “Fantasy dinner”, sem er kvöldverður og þjóðleg skemmtun í veitingastaðnum Chez Ali www.ilove-marrakech.com/chezali
19. maí
Eftir morgunverð er haldið frá Marakech til Casablanca sem er iðnaðar- og efnahagsmiðstöð landsins. Kynnisferð um þessa merku borg sem margir kannast við, m.a. úr frægri kvikmynd. Síðdegis er haldið áfram til höfuðborgar Morocco Rabat (um 90 km). Gist í Rabat í eina nótt. Kvöldverður á hótelinu.
20. maí
Kynnisferð eftir morgunverð um Rabat, sem er höfuðborg landsins og þar er ýmislegt markvert að sjá. Síðan er haldið áfram til hafnarborgarinnar Tangier (um 280 km) þar sem gist verður síðustu nóttina í Marokkó. Kvöldverður á hótelinu.
21. maí
Eftir morgunverð er ekið kynnisferð um Tangier, er haldið áfram til Ceuta (um 100 km) þar sem farið verður með ferjunni til baka til Spánar, til Algeciras, þar sem rúta bíður. Ekið um Andalúsíuhérað til Torremolinos á Costa del Sol þar sem dvalið verður í eina nótt á góðu hóteli í miðborg Torremolinos. Kvöldverður á hótelinu.
22. maí
Ekið til flugvallar í Malaga. Flugtak kl. 14:05 til Íslands og áætluð lending í Keflavík kl. 16:45.
Verð á mann:
Kr. 249.900 á mann í tvíbýli.
Kr. 293.800 á mann í einbýli.
Innifalið:
Flug til Jerez og frá Malaga, skattar, gisting á góðum 3*/ 3*+ hótelum í 10 nætur með hálfu fæði inniföldu. Kynnisferðir samkvæmt dagskrá hér að ofan. Sigling frá / til Spáni til Afríku Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:
Hádegisverður, aðgangseyrir á söfn, tónleika og aðrar kynnisferðir en þær er tilgreint eru ofan.