Netklúbbur

Cinque Terre á Ítalíu

Ítalía-Cinque Terre 22. ágúst

Ítalía – Cinque Terre
22. - 29. ágúst

UPPSELT / BIÐLISTI!!

Fararstjóri: Sigrún Elefsen

Vinsælasta gönguferð Heimsferða ! 
Vikulöng gönguferð um ströndina og þorpin í Cinque Terre á Ítalíu,  á svæði sem býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu.  Cinque Terre  heitir eftir fimm þorpum sem virðast hanga utan í bröttum  hlíðunum við ströndina sunnan við Genúa. Þarna mynda fallegar hafnir,  fullar af litskrúðugum  fiskibátum og þröng strætin mjög sérstaka stemmningu. Á millli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettasnasir eða um iðagrænar  og ávalar hæðir þaktar vínviði og ólífuviðarlundum.  Gist er á heimilislegu hóteli í einu þorpinu og farið þaðan í dagsgöngur.  Gengið er í um 4–6 tíma á dag  og flokkast ferðirnar sem léttar til miðlungserfiðar  og henta því flestum sem eru í nokkuð góðu formi.

7221HOTEL MARINA
Marina Hotel er staðsett miðsvæðis smábænum Monterosso Á hótelinu eru 25 herbergi, öll með sér baðherbergi, gervihnattasjónvarpi, síma og  öryggilhólfi og hárþurrku. Á hótelinu er lyfta, setustofa, morgunverðarsalur.



Ferðatilhögun: 

22. ágúst flug með Iceland Express til Bologna flugvallar. Flugtak kl 15:10, lending kl 21:20 að staðartíma.
Frá Malpensa / Bologna  til Monterosso er um 290 km og tekur um 3,5 - 4 tíma að aka þangað. Monterosso er eitt af þorpunum í Cinque Terre  þar sem er gist á 3* hóteli, Hotel Marina, í 7 nætur. Morgunverðarhlaðborð innifalið í verði.

23. ágúst Monterosso og nágrenni
Við byrjum á rólegu nótunum og förum í létta gönguferð um bæinn okkar, þar sem við kynnumst lífinu og aðstæðum í Monterosso.

24. ágúst  Monterosso-Levanto 7 km / 3 klst.
Leiðin liggur meðfram sjónum framhjá "Risanum" og upp á Mescohöfða þaðan sem útsýnið frá vitanum og 11. aldar rústum  kenndum við einsetumanninn Heilagan Antonio er óviðjafnanlegt. Héðan liggur leiðin um furuskóga og ræktað land niður til  Levanto þaðan sem siglt er aftur til Monterosso.

25. ágúst  Monterosso – Vernazza 6 km / 5 klst.
Frá Monterosso er stefnan tekin upp úr bænum, eftir skuggsælum múlasnastíg er liggur upp til bænahússins við Madonna di Soviore, þaðan sem útsýnið yfir Monterosso er óviðjafnanlegt. Leið okkar liggur eftir fáförnum göngustíg um ilmandi gróðurbreiður og víngarðana  ofan við Vernazza. Héðan liggur leiðin niður að höfn þaðan sem siglt er aftur til Monterosso.

26. ágúst Monterosso - Riomaggiore 12 km / 5 klst.
Gangan er ein kunnasta gönguleið á Ítalíu. Leiðin liggur um "þorpin fimm" sem svæðið er kennt við, um litskrúðugar smábátahafnir,  eftir greiðfærum göngustíg er vindur sig áfram utan í snarbröttum hlíðum yfir fagurbláu hafi. Göngunni líkur á hinum svokallaða  "Ástarstíg", milli Manarola og Riomaggiore.

27. ágúst Manarola – Corniglia 5 km / 4 klst. 
Frá Manarola liggur leiðin innan um sítrus- og ólífuvið upp til bæjarins Volastra, þaðan sem göngustígurinn vindur sig í gegnum  ægifögur vínræktarlönd og furuskóga í um 400 m. hæð. Héðan er útsýnið með ólíkindum og á góðum degi má sjá alla leið til  Korsíku. Frá Corniglia tökum við lestina aftur til Monterosso.

28. ágúst Riomaggiore – Portovenere 11 km / 6 klst. 
Frá Riomaggiore liggur leiðin um ilmandi gróðurbreiður og vínræktarlönd upp í um 500 m hæð. Héðan liggur gönguleiðin eftir fjallshryggnum,  en þaðan er víðfeðmt útsýni yfir "Skáldaflóa" og suður til Apuani alpanna. Frá Portovenere er siglt meðfram gjörvallri Cinque Terre ströndinni  aftur til Monterosso.

29. ágúst Heimferð / Í dag kveðjum við Monterosso og haldið verður til flugvallar. Flogið er heim frá Bologna flugvelli.

Nánari upplýsingar um búnað og annað sem skiptir máli verður sent til farþega fyrir brottför.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Heimsferðir áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna,  að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.

Netverð á mann:

22. - 29. ágúst
kr. 193.700 á mann í tvíbýli
kr. 237.300 á mann í einbýli

Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli  með morgunverðarhlaðborði. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns.

Ekki innifalið:
Tilfallandi  kostnaður á göngu; s.s. aðgangseyrir, bátar, kláfar, rútur og annað sem ekki er  tilgreint í ferðalýsingu.

Staðfestingargjald er kr. 25.000. Lágmarksþáttaka er 15 manns. Hámarksþáttaka er 20 manns.  


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur