Netklúbbur

Á bökkum Gardavatnsins
29. ágúst – 3. september

6 sæti laus !

Fararstjóri:
Einar Garibaldi Eiríksson

Dásamlegar gönguferðir til hins undurfagra Gardavatns þar sem dvalið verður á góðu 3*+ hóteli í útjaðri bæjarins Malcesine  við norðausturenda Gardavatnsins. Þaðan verður haldið í spennandi dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli  litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu  Norður-Ítalíu.

Ferðatilhögun:

29. ágúst
Flogið er í beinu flugi Icelandair til Malpensa flugvallar í Mílanó. Flugtak  kl.16:50 og lending kl. 22:40 að staðartíma. Um 3ja tíma akstur er frá Malpensa til Malcesine. 
 
30. ágúst
Fyrsti dagurinn er á rólegu nótunum og við hefjum ferðina á stuttri gönguferð um bæinn okkar. Við kynnum okkur bæjarbraginn  og  aðstæður í Malcesine. Leiðin liggur meðfram bökkum Gardavatnsins og inn í gamla bæinn; þar sem við skoðum litskrúðugar  hafnirnar, kastalann og þröng strætin sem iða af mannlífi, skemmtilegum krám, veitingastöðum og verslunum.

31. ágúst
Ólífuviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 200 m
.
Í dag göngum við eftir austurbakka Garda vatnsins. Leið okkur liggur um ræktað land og gróðurvinjar, þar sem ólífuviðurinn er allsráðandi. Við hefjum för í Brenzone, þaðan sem við þræðum okkur eftir kræklóttum stígum á milli smáþorpa í suðurátt til
Torri del Benaco, eins fegursta þorpsins við vatnið. Héðan tökum við bát og siglum aftur norður til Malcesine.

1. september
Sítrusviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 500 m
.
Við hefjum gönguna í bænum Gargnano, við vesturströnd vatnsins, þaðan sem við þræðum okkur upp fornar Píslargönguleiðir  til eyðilegra smáþorpa og bænahúsa er veita okkur óviðjafnanlegt útsýni yfir Gardavatnið. Hér liggur leiðin í hring og við njótum  hressilegra afurða sítrúsviðarins áður en við siglum aftur til Malcesine.

2. september
Ventrar skarðið / 7 km / 4 klst. / +-400 m.
Í dag stefnum við til griðlandsins á Monte Baldo fjalli. Við tökum kláf frá Malcesine sem ber okkur upp í um 1.750 m. hæð; héðan göngum við til norðurs í átt að og í gegnum Ventrar skarðið, sem rómað er fyrir ægifagurt útsýnið og fjölbreyttan gróður. Leiðin  liggur í hring og við fáum okkur hressingu að hætti heimamanna í fjallaskála á bakaleið okkar til kláfsins er ber okkur aftur niður til Malcesine.

3. september - Heimferð
Upplagt að njóta hvíldarinnar við sundlaugarbarminn fram að hádegi. Brottför frá hóteli um eftirmiðdaginn.  Ekið til Malpensa flugvallar þaðan sem flogið er með Icelandair kl. 23:40 og lent í Keflavík kl. 01:55 eftir miðnætti.

Gististaður: Hotel Excelsior Bay ***+
Hotel Excelsior Bay er mjög gott þriggja stjörnu hótel sem stendur á fallegum og rólegum stað við strönd Gardavatnsins,  í stuttu göngufæri frá hinum rómaða miðbæ Malcesine. Á hótelinu eru m.a.: setustofa, veitingastaður og bar. Þar er einnig góður garður með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu, auk líkamsræktaraðstöðu, gufubaði og nuddstofu. Öll herbergi  eru loftkæld, með síma, gervihnattarsjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi.
(Sjá: http://www.hotelexcelsiorbay.com).

Netverð á mann / 5 nátta ferð
29. ágúst – 3. september
                                                                                                                                                                
kr.   174.400  á mann í tvíbýli.                                                       
kr.   207.400  á mann í  einbýli.                                                   
                                                 
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3*+ hóteli  með hálfu fæði ( morgunverður og kvöldverður). Akstur til og frá flugvelli og íslensk  fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns.

Ekki innifalið: Bátsferðir, valfrjálsar kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum, kláfum  og annað sem ekki er tilgreint að ofan.


Verð er miðað lágmarksþátttöku 15 manns.       
Hámarksfjöldi er 20 manns.

Athugið:
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Heimsferðir áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur