Á bökkum Gardavatnsins
29. ágúst – 3. september
6 sæti laus !
Fararstjóri:
Einar Garibaldi Eiríksson
Dásamlegar gönguferðir til hins undurfagra Gardavatns þar sem dvalið verður á góðu 3*+ hóteli í útjaðri bæjarins Malcesine við norðausturenda Gardavatnsins. Þaðan verður haldið í spennandi dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu Norður-Ítalíu.
Ferðatilhögun:
29. ágúst
Flogið er í beinu flugi Icelandair til Malpensa flugvallar í Mílanó. Flugtak kl.16:50 og lending kl. 22:40 að staðartíma. Um 3ja tíma akstur er frá Malpensa til Malcesine.
30. ágúst
Fyrsti dagurinn er á rólegu nótunum og við hefjum ferðina á stuttri gönguferð um bæinn okkar. Við kynnum okkur bæjarbraginn og aðstæður í Malcesine. Leiðin liggur meðfram bökkum Gardavatnsins og inn í gamla bæinn; þar sem við skoðum litskrúðugar hafnirnar, kastalann og þröng strætin sem iða af mannlífi, skemmtilegum krám, veitingastöðum og verslunum.
31. ágúst
Ólífuviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 200 m.
Í dag göngum við eftir austurbakka Garda vatnsins. Leið okkur liggur um ræktað land og gróðurvinjar, þar sem ólífuviðurinn er allsráðandi. Við hefjum för í Brenzone, þaðan sem við þræðum okkur eftir kræklóttum stígum á milli smáþorpa í suðurátt til
Torri del Benaco, eins fegursta þorpsins við vatnið. Héðan tökum við bát og siglum aftur norður til Malcesine.
1. september
Sítrusviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 500 m.
Við hefjum gönguna í bænum Gargnano, við vesturströnd vatnsins, þaðan sem við þræðum okkur upp fornar Píslargönguleiðir til eyðilegra smáþorpa og bænahúsa er veita okkur óviðjafnanlegt útsýni yfir Gardavatnið. Hér liggur leiðin í hring og við njótum hressilegra afurða sítrúsviðarins áður en við siglum aftur til Malcesine.
2. september
Ventrar skarðið / 7 km / 4 klst. / +-400 m.
Í dag stefnum við til griðlandsins á Monte Baldo fjalli. Við tökum kláf frá Malcesine sem ber okkur upp í um 1.750 m. hæð; héðan göngum við til norðurs í átt að og í gegnum Ventrar skarðið, sem rómað er fyrir ægifagurt útsýnið og fjölbreyttan gróður. Leiðin liggur í hring og við fáum okkur hressingu að hætti heimamanna í fjallaskála á bakaleið okkar til kláfsins er ber okkur aftur niður til Malcesine.
3. september - Heimferð
Upplagt að njóta hvíldarinnar við sundlaugarbarminn fram að hádegi. Brottför frá hóteli um eftirmiðdaginn. Ekið til Malpensa flugvallar þaðan sem flogið er með Icelandair kl. 23:40 og lent í Keflavík kl. 01:55 eftir miðnætti.
Gististaður: Hotel Excelsior Bay ***+
Hotel Excelsior Bay er mjög gott þriggja stjörnu hótel sem stendur á fallegum og rólegum stað við strönd Gardavatnsins, í stuttu göngufæri frá hinum rómaða miðbæ Malcesine. Á hótelinu eru m.a.: setustofa, veitingastaður og bar. Þar er einnig góður garður með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu, auk líkamsræktaraðstöðu, gufubaði og nuddstofu. Öll herbergi eru loftkæld, með síma, gervihnattarsjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi.
(Sjá: http://www.hotelexcelsiorbay.com).
Netverð á mann / 5 nátta ferð
29. ágúst – 3. september
kr. 174.400 á mann í tvíbýli.
kr. 207.400 á mann í einbýli.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3*+ hóteli með hálfu fæði ( morgunverður og kvöldverður). Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns.
Ekki innifalið: Bátsferðir, valfrjálsar kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum, kláfum og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Verð er miðað lágmarksþátttöku 15 manns.
Hámarksfjöldi er 20 manns.
Athugið:
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Heimsferðir áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Á bökkum Gardavatnsins
21. ágúst – 29. ágúst
3 sæti laus!
Fararstjóri:
Einar Garibaldi Eiríksson
Dásamlegar gönguferðir til hins undurfagra Gardavatns þar sem dvalið verður á góðu 3*+ hóteli í útjaðri bæjarins Malcesine við norðausturenda Gardavatnsins. Þaðan verður haldið í spennandi dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu Norður-Ítalíu.
Ferðatilhögun:
21. ágúst
Flogið er í beinu flugi Icelandair til Malpensa flugvallar í Mílanó. Flugtak kl.16:50 og lending kl. 22:40 að staðartíma. Um 3ja tíma akstur er frá Malpensa til Malcesine.
22. ágúst
Fyrsti dagurinn er á rólegu nótunum og við hefjum ferðina á stuttri gönguferð um bæinn okkar. Við kynnum okkur bæjarbraginn og aðstæður í Malcesine. Leiðin liggur meðfram bökkum Gardavatnsins og inn í gamla bæinn; þar sem við skoðum litskrúðugar hafnirnar, kastalann og þröng strætin sem iða af mannlífi, skemmtilegum krám, veitingastöðum og verslunum.
23. ágúst
Ólífuviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 200 m.
Í dag göngum við eftir austurbakka Garda vatnsins. Leið okkur liggur um ræktað land og gróðurvinjar, þar sem ólífuviðurinn er allsráðandi. Við hefjum för í Brenzone, þaðan sem við þræðum okkur eftir kræklóttum stígum á milli smáþorpa í suðurátt til
Torri del Benaco, eins fegursta þorpsins við vatnið. Héðan tökum við bát og siglum aftur norður til Malcesine.
24. ágúst
Sítrusviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 500 m.
Við hefjum gönguna í bænum Gargnano, við vesturströnd vatnsins, þaðan sem við þræðum okkur upp fornar Píslargönguleiðir til eyðilegra smáþorpa og bænahúsa er veita okkur óviðjafnanlegt útsýni yfir Gardavatnið. Hér liggur leiðin í hring og við njótum hressilegra afurða sítrúsviðarins áður en við siglum aftur til Malcesine.
25. ágúst
Ventrar skarðið / 7 km / 4 klst. / +-400 m.
Í dag stefnum við til griðlandsins á Monte Baldo fjalli. Við tökum kláf frá Malcesine sem ber okkur upp í um 1.750 m. hæð; héðan göngum við til norðurs í átt að og í gegnum Ventrar skarðið, sem rómað er fyrir ægifagurt útsýnið og fjölbreyttan gróður. Leiðin liggur í hring og við fáum okkur hressingu að hætti heimamanna í fjallaskála á bakaleið okkar til kláfsins er ber okkur aftur niður til Malcesine.
26. ágúst
Ofan við Limone / 10 km / 6 klst. / +700-800 m.
Úr Ledro dal göngum við upp í gegnum dalverpi og yfir fjallaskörð, þaðan sem við fikrum okkur út á þverhnípta fjallshryggi er veita okkur óviðjafnanlegt útsýni yfir Gardavatnið. Við þræðum okkur niður brattar hlíðar Singol dalsins ofan við Limone, sem við skoðum áður en við tökum bátinn aftur yfir vatnið til Malcesine.
27. ágúst
Monte Baldo hringurinn / 7 km / 4 klst. / +-400 m.
Við tökum kláfinn upp frá Malcesine á ný, en nú liggur leið okkar eftir fjallshryggnum í suðurátt, í átt að hæstu tindum Monte Baldo fjallgarðsins. Við göngum á Cima delle Pozzette í ríflega 2.100 m. hæð, þaðan sem við njótum víðfems útsýnis til Alpanna í norðri og Pó sléttunnar í suðri. Héðan fikrum við okkur niður til Pre Alpesina og njótum þar lystisemda fjallasalanna, áður en við snúum aftur til kláfsins er ber okkur á ný niður til Malcesine.
28. ágúst
Frjáls dagur við Gardavatnið. Margvíslegir möguleikar í stöðunni, þá má til dæmis sigla á vatninu og skoða fallega bæi eins og Sirmione, Bardolino, Garda, Limone eða Riva. Þá má líka njóta þess að skoða Malcesine bæinn enn betur, eða jafnvel halda áfram gönguferðum í samráði við fararstjóra ferðarinnar
29. ágúst - Heimferð
Upplagt að njóta hvíldarinnar við sundlaugarbarminn fram að hádegi. Brottför frá hóteli um eftirmiðdaginn. Ekið til Malpensa flugvallar þaðan sem flogið er með Icelandair kl. 23:40 og lent í Keflavík kl. 01:55 eftir miðnætti.
Gististaður: Hotel Excelsior Bay ***+
Hotel Excelsior Bay er mjög gott þriggja stjörnu hótel sem stendur á fallegum og rólegum stað við strönd Gardavatnsins, í stuttu göngufæri frá hinum rómaða miðbæ Malcesine. Á hótelinu eru m.a.: setustofa, veitingastaður og bar. Þar er einnig góður garður með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu, auk líkamsræktaraðstöðu, gufubaði og nuddstofu. Öll herbergi eru loftkæld, með síma, gervihnattarsjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi. (Sjá: http://www.hotelexcelsiorbay.com).
Netverð á mann / 8 nátta ferð
21. – 29. ágúst
kr. 219.900 á mann í tvíbýli.
kr. 272.600 á mann í einbýli.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3*+ hóteli með hálfu fæði ( morgunverður og kvöldverður). Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns.
Ekki innifalið: Bátsferðir, valfrjálsar kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum, kláfum og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Verð er miðað lágmarksþátttöku 15 manns.
Hámarksfjöldi er 20 manns.
Athugið:
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Heimsferðir áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Á bökkum Gardavatnsins
2. - 9. júní
Leiðsögumaður:
Einar Garibaldi Eiríksson
Vikulöng gönguferð til hins undurfagra Gardavatns þar sem dvalið verður á góðu 3*+ hóteli í útjaðri bæjarins Malcesine við norðausturenda Gardavatnsins. Þaðan verður haldið í spennandi dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu Norður-Ítalíu.
Dagur 1.
Flogið er í beinu flugi Icelandair til Malpensa flugvallar í Mílanó. Um 3ja tíma akstur er frá Malpensa til Malcesine. Flugtak er kl. 7:30 og lending kl. 13:20 að staðartíma.
Dagur 2: Malcesine
Fyrsti dagurinn er á rólegu nótunum og við hefjum ferðina á stuttri gönguferð um bæinn okkar. Við kynnum okkur bæjarbraginn
og aðstæður í Malcesine. Leiðin liggur meðfram bökkum Gardavatnsins og inn í gamla bæinn; þar sem við skoðum litskrúðugar
hafnirnar, kastalann og þröng strætin sem iða af mannlífi, skemmtilegum krám, veitingastöðum og verslunum.
Dagur 3: Ólífuviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 200 m.
Í dag göngum við eftir austurbakka Garda vatnsins. Leið okkur liggur um ræktað land og gróðurvinjar, þar sem ólífuviðurinn er
allsráðandi. Við hefjum för í Brenzone, þaðan sem við þræðum okkur eftir kræklóttum stígum á milli smáþorpa í suðurátt til
Torri del Benaco, eins fegursta þorpsins við vatnið. Héðan tökum við bát og siglum aftur norður til Malcesine.
Dagur 4: Sítrusviðarströndin / 11 km / 6 klst. / +- 500 m.
Við hefjum gönguna í bænum Gargnano, við vesturströnd vatnsins, þaðan sem við þræðum okkur upp fornar Píslargönguleiðir
til eyðilegra smáþorpa og bænahúsa er veita okkur óviðjafnanlegt útsýni yfir Gardavatnið. Hér liggur leiðin í hring og við njótum
hressilegra afurða sítrúsviðarins áður en við siglum aftur til Malcesine.
Dagur 5: Ventrar skarðið / 7 km / 4 klst. / +-400 m.
Í dag stefnum við til griðlandsins á Monte Baldo fjalli. Við tökum kláf frá Malcesine sem ber okkur upp í um 1.750 m. hæð; héðan
göngum við til norðurs í átt að og í gegnum Ventrar skarðið, sem rómað er fyrir ægifagurt útsýnið og fjölbreyttan gróður. Leiðin
liggur í hring og við fáum okkur hressingu að hætti heimamanna í fjallaskála á bakaleið okkar til kláfsins er ber okkur aftur niður til Malcesine.
Dagur 6: Ofan við Limone / 10 km / 6 klst. / +700-800 m.
Úr Ledro dal göngum við upp í gegnum dalverpi og yfir fjallaskörð, þaðan sem við fikrum okkur út á þverhnípta fjallshryggi er veita okkur óviðjafnanlegt útsýni yfir Gardavatnið. Við þræðum okkur niður brattar hlíðar Singol dalsins ofan við Limone, sem við skoðum áður en við tökum bátinn aftur yfir vatnið til Malcesine.
Dagur 7: Monte Baldo hringurinn / 7 km / 4 klst. / +-400 m.
Við tökum kláfinn upp frá Malcesine á ný, en nú liggur leið okkar eftir fjallshryggnum í suðurátt, í átt að hæstu tindum Monte Baldo fjallgarðsins. Við göngum á Cima delle Pozzette í ríflega 2.100 m. hæð, þaðan sem við njótum víðfems útsýnis til Alpanna í norðri og Pó sléttunnar í suðri. Héðan fikrum við okkur niður til Pre Alpesina og njótum þar lystisemda fjallasalanna, áður en við snúum aftur til kláfsins er ber okkur á ný niður til Malcesine.
Dagur 8: Heimferð
Brottför frá hóteli um eftir morgunverð. Ekið til Malpensa flugvallar þaðan sem flogið er með Icelandair kl. 14:20 og lent í Keflavík kl. 16:35 um eftirmiðdaginn.
Gististaður: Hotel Excelsior Bay ***+
Hotel Excelsior Bay er mjög gott þriggja stjörnu hótel sem stendur á fallegum og rólegum stað við strönd Gardavatnsins, í stuttu göngufæri frá hinum rómaða miðbæ Malcesine. Á hótelinu eru m.a.: setustofa, veitingastaður og bar. Þar er einnig góður garður með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu, auk líkamsræktaraðstöðu, gufubaði og nuddstofu. Öll herbergi eru loftkæld, með síma, gervihnattarsjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi.
Sjá: http://www.hotelexcelsiorbay.com
Athugið:
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Heimsferðir áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs
og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Verð á mann:
215.800 kr. á mann í tveggja manna herbergi
249.900 kr. á mann í eins manns herbergi
Innifalið / ekki innifalið:
Innifalið er flug til og frá Malpensa á Ítalíu, skattar, gisting á 3*+ hóteli í 7 nætur, morgunverður og kvöldverður á hóteli. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns. Tryggingar eru ekki innifaldar, né heldur tilfallandi kostnaður á göngu; s.s. aðgangseyrir, bátar, kláfar, rútur, nesti, hádegisverðir, vínsmökkun og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Staðfestingargjald er 25.000 kr. Lágmarksþáttaka er 15 manns. Hámarksþáttaka er 20 manns.