"Fullt af tvennu"
Sevilla borg er ma.a. fræg fyrir nær óendanlegan fjölda af tvennu. Annars vegar fjölda af kirkjum sem eru, að segja má, á hverju götuhorni og hins vegar er borgin annáluð fyrir allan þann fjölda tapas veitingastaða (tapas bara) sem þar er. Sevilla getur státað af því að þessi spænski þjóðarréttur er upprunnin hér og sagt er að tapas barir borgarinnar séu á annað þúsund.
Frábært að versla
Hér er frábært að versla og endalaust úrval verslana, bæði lítilla sjarmerandi sérverslana sem og stærri verslana af öllu tagi. Markaðir eru hér einnig þar sem skoða má mjög fjölbreyttan varning.
Samgöngur
Strætisvagnar ganga reglulega út um alla borg og eru þægilegur og ódýr ferðamáti. Hægt er að kaup þriggja daga strætókort fyrir 7,50 Evrur. Einnig er fljótlegt og þægilegt að taka neðanjarðarlest inn í miðborgina (sjá neðanjarðarlestarkort hér). Að auki er borgin full af leigubílum sem eru einnig fljótvirkur og þægilegur ferðamáti.
Afþreying - skemmtun
Einnig er mjög áhugaverður skemmtigarður, Isla Mágica, á Cartuja eyjunni í borginni. Sannkallaður ævintýraheimur sem er sjálfsagður ákvörðunarstaður þeirra sem sækja í líf og fjör.
Ýmsir áhugaverðir tenglar:
Andalucia.com - fjölbreyttar upplýsingar um Sevilla
Isla Mágica - skemmtigarðurinn
Veitingastaðir í borginni og fleira
Sevilla - upplýsingar á íslensku (Ferðaheimur)