Kynnisferðir Heimsferða í Prag 2012
Gamli bærinn í Prag – gönguferð
Menningarhúsið kl. 10:00 3 – 4 klst.
Farþegar hittast við Menningarhúsið (Obecní Dum) við Republiky torgið kl. 10.00.
Gengið framhjá Púðurturninum, um verslunarsvæði, að Vaclav torgi (Wenceslas square) og niður að hinu stórkostlega aðaltorgi gamla bæjarins, Staromestské Námestí. Þaðan er farið í Gyðingahverfið og áfram niður að Moldá og Karlsbrúnni þar sem ferðin endar. Á leiðinni er staldrað víða við enda saga, listir og áhugavekjandi atriði á hverju horni. Mælum eindregið með þessari ferð fyrir þá sem eru í fyrsta sinn í Prag og vilja ná áttum.
Kastalahverfið í Prag – gönguferð
Menningarhúsið kl. 10:00 3 – 4 klst.
Farþegar mæta við Menningarhúsið (Obecní Dum) við Republiky torgið kl. 10:00.
Rútuferð upp á kastalahæðina þar sem gönguferðin hefst við Strahov klaustrið. Byrjað á því að fræðast um klaustrið og njóta útsýnisins yfir borgina. Gengið niður á við, fram hjá helgidómum og höllum (Loreta, Cernín höll. Schwarzenberg höll, erkibiskupshöllinni o.fl.), staldrað við og fjallað um söguna, listina og lífið. Gengið gegnum kastalaportin þrjú þar sem margt kemur á óvart, ekki síst hin stórfenglega Vitusar dómkirkja o.fl. Kaffihlé áður en haldið er áfram niður í hið einstaka Malá Strana hverfi með sínum sögufrægu götum og húsum. Ferðinni lýkur við hina fögru barokk kirkju heilags Nikulásar, skammt frá Karlsbrúnni. Vinsamlegast athugið að í þessari ferð er ekki farið inn í söfn og byggingar (nema dómkirkjuna) og rútuferð er eingöngu í upphafi ferðar.
Karlovy Vary (Karlsbad)
Menningarhúsið kl. 09:30 9 – 10 klst.
Farþegar mæta við Menningarhúsið (Obecní Dum) við Republiky torgið kl. 9:30.
Kjörið tækifæri til að kynnast Tékklandi betur, náttúru, landslagi og lífi. Brottför frá Republiky torgi og ekið í um 2 klst. með stoppi þar til komið er til Karlovy Vary sem er einn af þekktustu og fallegustu heilsulindarbæjum Evrópu. Byrjað er á því að fara í stutta gönguferð um fallegan bæinn og staldrað við hjá heilsulindum og stöðum sem margir frægustu menn og konur sögunnar hafa sótt í gegnum tíðina. Síðan gefst frjáls tími til að fá sér hádegisverð, skoða sig nánar um eða
versla og njóta umhverfisins áður en haldið er heim. Áætluð heimkoma milli kl. 18:00 og 19:00.
Bóka verður kynnisferðir á Íslandi. Ekki er hægt að tryggja að farþegi komist í ferð ef ekki hefur verið bókað heima fyrir brottför.
Lágmarks þáttaka í kynnisferð með íslenskum fararstjóra er 20 manns.