Kynnisferðir Heimsferða
Ljubljana - gönguferð
Brottför um kl 09:30 frá hótelum. 1 1/2 - 2 klst.
Ljubljana, höfuðborg Slóveníu er ótvírætt ein af leyndu perlum Evrópu. Í borginni búa um 300
þús. manns, og miðborgin iðar af lífi, enda óvenju hátt hlutfall af ungu fólki, stúdentum og
listamönnum sem búa þar. Yfir borginni gnæfir Ljubljana kastali, um miðborgina liðast litla áin
Ljubljanica og beggja vegna við hana er mikið líf og fólk í alls kyns erindagjörðum, verslanir,
listamannasmiðjur, kaffihús og veitingastaðir. Í gönguferð um miðbæinn kynnumst við helstu
kennileitum og byggingum og fræðumst um lífið í bænum. Við Presernov torg og brýrnar
þrjár, liggja leiðir til allra átta. Við sjáum dómkirkjuna, hinn líflega og stóra markað,
skemmtilegar götur og byggingar gamla bæjarins, förum að Kongresni torgi og sjáum
Fílharmoníuna, háskólann, þinghúsið, óperuna, þjóðminjasafnið og ýmislegt fleira áður en
gönguferðin endar.
Fjallaperlan Bled
Brottför um kl. 10:00 frá hótelum. Um 6 klst ferð.
Í margra huga er fjallaperlan Bled í Slóveníu einn fegursti staður Alpanna. Bled er lítill
ferðamannabær við samnefnt vatn í faðmi fallegra fjalla í um klukkustundar akstursfjarlægð
frá Ljubljana. Í miðju vatninu er lítil eyja sem setur sérstakan svip á landslagið en myndin
fullkomnast af kastalanum sem gnæfir uppi á kletti fyrir ofan. Í Bled er farið í stutta kynnisferð
um staðinn og upp í kastalann, og siglt er á hinum þekktu “pletnabátum” útí eyju. Frjáls tími til
að fá sér göngutúr um fallegt landið, rölta um bæinn og fá sér eitthvað í svanginn, t.d. kaffi og
“kremsnita” (sérstök kaka frá Bled) áður en haldið er til baka.
Postojna hellarnir og Predjama kastali
- Brottför um k. 10:30 frá hótelum. Um 5 klst ferð.
Dropasteinshellarnir í Postojna eru meðal stærstu, fegurstu og frægustu neðanjarðarhella í
heimi. Yfir 20 km af göngum, sölum og náttúrulistaverkum . Í milljónir ára hafa neðanjarðarár
grafið sér leið um karst jarðveginn og eru enn að. Vatnið sem seytlar niður, myndar síðan
nokkurs konar grýlukerti sem verða að ótrúlegum og litríkum listaverkum. Niðri í hellunum er
einnig að finna hina mjög sjaldgæfu og forvitnilegu veru, mannfisk (Proteus Anguinus). Ekið
frá Ljubljana í um 1 klst. Farið er niður í hellana í ferðamannalest, um 4 km. Þá tekur við
gönguferð í 1 – 1 ½ km á góðum stígum. Örlítill hæðarmunur en allir sem eiga ekki í
erfiðleikum með gang fara þetta léttilega. Í lokin er lestin tekin upp aftur og alls tekur þessi
ferð rúmlega klukkutíma. Haldið er áfram til Predjama kastala sem er í um 12 km fjarlægð frá
hellunum. Kastalinn er byggður inn í klettavegg og einstakur í sinni röð. Inni er afar áhugavert
safn. Eftir skoðunarferð um kastalann er haldið til baka til Ljubljana.
Bóka þarf kynnisferðir á Íslandi fyrir brottför til að tryggja sér sæti.
Lágmarksþátttaka með íslenskum fararstjóra er 20 manns.
Nákvæmur brottfarartíma í ferðir verður auglýstur á staðnum.