Netklúbbur

Kynnisferðir

Kynnisferðir í Budapest 2012

Kynnisferð um Budapest      Um 4 klst.    
      
Farþegar sóttir á hótel og ekið um borgina með viðdvöl á völdum stöðum. Farið verður að hinu tilkomumikla Hetjutorgi og Borgargarðinum í Pest hlutanum. Stutt ganga. Ekið verður fram hjá glæsibyggingum eins og óperuhúsinu, Stefánskirkjunni og hinu stórbrotna þinghúsi og farið yfir Dóná og upp í Buda-hæðir.  Þar er stoppað og gengið um kastalahverfið að Mattheusarkirkjunni og Fiskimannavirkinu, en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir borgina. Einnig ekið upp á Gellert hæð með hinu fræga virki, Citadella og “frelsisstyttunni”. Ath ferðin getur verið erfið fyrir þá sem eiga erfitt með gang þar sem stoppað er á völdum stöðum og farið er í smá göngutúra, á einum stað er mikið um tröppur. Ferðinni lýkur í miðbænum. 

Gönguferð um Budapest    Kl. 11.00 (strax eftir viðtalstíma)  

Um er að ræða um 3ja tíma gönguferð um miðborg Budapest. Lagt af stað frá Váci göngugötunni við Vörösmarty torgið gengið meðfram Dóna í átt að Dómkirkjunni og það markverðasta skoðað á leiðinni, fræðumst um svo kallað Brodway Budapest þar sem hægt er að finna Óperuna, listaakademíuna og fjöldan allan af leikhúsum þetta er eitt af menningahverfunum í borginni. Að lokum förum við um  gyðingahverfið, ferðin endar svo við stærsta bænahús gyðinga í Evrópu. Mælum með þessari ferð fyrir þá sem vilja fræðast og kynnast miðborginn nánar enda blasir sagan við  á hverju götuhorni. Ath þessi ferð hentar aðeins þeim sem eiga auðvelt með gang.


Budapest – Budapest að næturlagi - Kvöldskemmtun    Um 3 - 4 klst   
Það er mikil matarmenning í Ungverjalandi og hver kannast ekki við hina heimsfrægu Gúllas súpu.Í ár bjóða Heimsferðir upp á kvöldskemmtun á Borkatakomba veitingastaðnum sem staðsettur er í flóknu hellakerfi í Buda hæðum. Tekið er á móti farþegum að hætti ungverja með pálinka (snafsi heimamanna) og heimalöguðum skonsum. Boðið er upp á 3ja rétta máltíð, sígunatónlist og þjóðdansa. Að loknu borðhaldi er farþegum ekið í gegnum stórkostlega upplýsta borgina að hótelum. Innifalið kvöldverður og rútuferð til og frá hótelum með viðeigandi stoppum á fallegum stöðum í borginni til að skoða.

Szentendre   Um 5 - 6 klst.    
Farþegar sóttir á hótel og ekið í um 1 klst. til hins fallega smábæjar Szentendre, sem stendur við Dóná.  Sérstöðu hans mótuðu Serbar sem settust þar að í lok 17. aldar er þeir voru á flótta undan Tyrkjum. Í dag er bærinn einna líkastur lifandi safni. Fjöldi listamanna hefur sest þar að, húsin eru litrík og verslanir, vinnustofur og söfn setja svip sinn á bæinn. Stutt kynnisferð, ganga og síðan frjáls tími til að njóta alls þess sem bærinn hefur upp á að bjóða áður en haldið er til baka.   Aðgangsmiði að Marzipan safninu og 1 drykkur innifalinn í verði.

Kvöldsigling á Dóná     Um 2 klst.  
Kvöldsigling á Dóná er einstök upplifun. Ljósum prýddar byggingar við ána skapa sérstakan rómantískan blæ. Dansarar og söngvarar frá Óperettuleikhúsinu í Búdapest dansa og syngja fyrir matargesti á sunnudagskvöldi. Dagskráin er mjög fjölbreytt m.a. verk eftir Kálmán, Lehár og söngvar úr þekktum söngleikjum, einnig stepp-dans og magadans.
Innifalið í verði: Sigling,kvöldverður( hlaðborð), fordrykkur (kampavín) og skemmtiatriði
Ath farþegar þurfa að koma sér sjálfir til og frá bátnum (nánari upplýsingar gefa fararstjórar).

Vinsamlega athugið að lágmarks þátttaka er 20 manns í ferð með íslenskum fararstjóra  og ekki er hægt að tryggja að þeir komist með í ferð sem ekki hafa skráð sig heima fyrir brottför.Mjög æskilegt er að fólk skrái sig eigi síðar en 2 vikum fyrir brottför.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur