Heimsferðir bjóða nú flug til og frá Billund í sumar 2012
Heimsferðir bjóða beint flug til Billund á næsta ári.
Flogið verður alla mánudaga frá 21. maí til 10. september frá Billund til Keflavíkur.
Flug frá Keflavík til Billund verður alla miðvikudaga frá 23. maí - 12. september.
Verð frá 13.900 flugsæti á mann aðra leið með sköttum.
Billund er ungur, fjörugur og snyrtilegur bær í miðri Danmörku og er í um 250 km frá Kaupmannahöfn. Styttra er til Þýskalands en það eru t.d. 135 km til Flensborgar í N-Þýskalandi. Í kringum Billund er fullt af litlum þorpum og hefur hvert þeirra sitt sérkenni og því margt skemmtilegt að sjá og skoða. Billund þykir hafa allt sökum þess hve miðsvæðis bærinn er staðsettur í Danmörku. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi en stutt er í skóglendi, til sjávar og stranda, inn á heiðar eða í iðandi mannlíf bæjarins. Hér eru einhverjir bestu hjólastígar Danmerkur og því kjörið að leigja sér hjól.
Eitt stærsta aðdráttarafl Danmerkur er í Billund, hið frábæra Legoland sem svo margir Íslendingar þekkja og hafa heimsótt áður. Endalaust líf og fjör, spenna og hlátur - manni endist ekki dagurinn hér!
Givskud dýragarðurinn tilheyrir líka Billund svæðinu en þar eru um 1000 dýr á einum 150 ekrum lands og þú keyrir í gegnum garðinn meðan dýrin ganga frjáls um.
Þó nokkrir golfvellir eru í kringum Billund og má sjá þá hér .
Gott að versla í Billund, þó ekki sé HM verslun akkúrat þar - en í Danmörku eru 88 HM verslanir og hér er listi yfir hvar þær er að finna
Visit Billund er alhliða upplýsingasíða um borgina.
Á þessari síðu eru hagnýtar upplýsingar á ensku og dönsku, upplýsingar um gistingu, LEGOLAND, golf, bari, veitingastaði, söfn, hjól, sundlaugar, gistingu og fleira.
Primera Air mun annast þessi leiguflug fyrir Heimsferðir á Íslandi eins og fyrir önnur dótturfyrirtæki Primera Travel Group í Skandinavíu. Þjónusta um borð er fyrsta flokks og að sjálfsögðu á íslensku.
Sjá nánari upplýsingar um flugfélagið