Netklúbbur


Heimsferðir bjóða, 20. árið í röð, beint flug til Barcelona. 

11. október - 15. október

Í Barcelona er frábært að versla og stórkostlegt mannlíf!! 

Smelltu hér til að bóka


Í Barcelona  er auðvelt að njóta daganna og heimsækja hin frægu listasöfn Mirós og Picassos, eða skoða byggingarlist sem er ólík allri annarri í heiminum. Gamli hluti borgarinnar, Barrio Gotico er frá 13. öld og hefur einstakt aðdráttarafl sem gaman er að upplifa á göngu um þröng strætin, innan um gallerí, veitingastaði, verslanir og söfn og drekka í sig mörghundruð ára gamla sögu Flug til Barcelonaborgarveggjanna. Borgin er kjörinn vettvangur fyrir lífskúnstnera því þar er að finna ótrúlegt úrval listasafna, veitingastaða og fagurra garða. Í Barcelona er iðandi mannlíf jafnt að nóttu sem degi, frægustu veitingastaðir og skemmtistaðir Spánar, blómlegt tónlistarlíf og síðast en ekki síst, frábært veðurfar.

Lengd flugs milli Íslands
og Barcelona:
4 klst.     
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +2 klst. á sumrin

Verslun
Í Barcelona er frábært að versla. Hönnun, tískufatnaður, antík og listmunir. Stórglæsilegar verslanir er að finna á Diagonal breiðgötunni, auk þess sem gaman er að rölta á milli smáverslana í Barrio Gotico. Í kringum Katalóníutorgið eru stórverslanir, s.s. El Corte Inglés og svo ber að nefna hina glæsilegu Maremagnum, sem er byggð á uppfyllingu í miðri höfninni.

Veitingastaðir
Margir framsæknustu veitingastaðir Evrópu eru í Barcelona. Þú getur valið spennandi nútímastaði með „nouvelle cusine“ eða gamla heillandi staði í Barrio Gotico. Við Ólympíuhöfnina er einnig einstakt úrval veitingastaða. Með ferðaupplýsingum Heimsferða fylgir fjöldi ábendinga um góða veitingastaði.

Næturlíf
Feiknalega skemmtilegt mannlíf er á veitingastöðum, börum og diskótekum í kringum Ólympíuhöfnina. Þar hefst gleðin gjarnan á kvöldin. Einnig er fjöldi diskóteka og skemmtistaða í nágrenni La Rambla. Fyrir listunnendur er ómissandi að líta við á breiðgötunni Parallel þar sem flest leikhús og tónleikasalir borgarinnar eru. Í Pueblo Español á Montjuïc-fjalli eru flamenkósýningar og ýmsar aðrar uppákomur.
Flug til Barcelona
Menningarlífið
Menningarlífið er með ólíkindum í þessari fögru borg, enda hafa margir frægustu synir Spánar fæðst, búið og unnið í Barcelona. Tónleika finnur þú daglega í borginni, hvort sem er klassík, jass, einhver alþjóðleg poppstjarna eða hinn hefðbundni flamenkó. Liceu, óperuhöllin, Palau de Musica með klassík og óperur, listasöfn Picassos, Mirós og Dalís, þjóðlistasafnið Museu Nacional d’art de Catalunya eða MNAC hefur að geyma minjar Katalóníu. Nýlistasafnið - MACBA er nýjasta afrek hins heimsfræga arkitekts Richard Meyers. Safnið var reist í miðju Raval-hverfinu og hýsir nýstárlegar sýningar nútímalistamanna. 

Samgöngur
Neðanjarðarlestin er þægilegur og hagkvæmur ferðamáti. Aðrir kjósa leigubíla, sem eru ódýrir, og ekkert mál er að nota strætó, sem gengur eftir öllum aðalgötum. Einnig er Bus Turistic góður kostur. Hann fer reglulega frá Plaza Catalunya og stoppar á fjölda athyglisverðra staða í borginni. Frábær aðferð til að kynnast borginni í rólegheitum.
Kort - hótelstaðsetningar og fl.


Sjá stærra kort

Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur