Netklúbbur


Hagnýtar upplýsingar

Hér finnurðu hagnýtar upplýsingar um golf í Cadiz, upplýsingar um vallargjöld, golfbíla, rásröð, klæðnað o.s.frv.

Veðurfar:

Cadiz  Mars  Apríl  Maí  Okt  Nóv 
Hámarkshiti  20°C 24°C 27°C 26°C 20°C
Lágmarkshiti  9°C 11°C 13°C 14°C 10°C
Meðal rigning 80mm 55mm 38mm 55mm 64mm


Þú getur kíkt á veðurspána  hér!

Rástímar:
Bókaðar eru 18 holur um kl. 09:00 á hverjum degi og sér fararstjóri um að raða í ráshópa. En ef menn vilja spila meira golf eftir þennan, skipulagða hring og ef rástímar eru lausir, má spila meira golf að kostnaðarlausu. Farþegar munu sjálfir sjá um að panta aukagolf. Ræst verður út frá tveimur teigum samtímis. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.

Rásröð:
Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita ef menn hafa einhverjar óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem mun gera sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Fjölbreytt golfmót eru haldin í hverri ferð (nánari upplýsingar á staðnum).

Ótakmarkað golf:
Gestir okkar á Spáni mega spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Aukagolf má ekki panta fyrr en eftir hring þar sem fullborgandi gestir vallarins hafa forgang.

Golfkennsla:
Hægt er að fá einkakennslu. Tekið við tímapöntunum á staðnum.

Golfbílar og kerrur:
Golfkerrur eru innifaldar í vallargjaldi viðskiptavina okkar. Hafi fólk óskir um golfbíla á Costa Ballena þá er hægt að panta þá þegar komið er á staðinn. Verð fyrir golfbíl á Costa Ballena er 20 EUR fyrir 18 holur eða 30 EUR fyrir daginn. Varðandi golfbíla á Novo Sancti Petri er betra að hafa gengið frá pöntun á bíl áður en farið er í ferðina. Verð fyrir 18 holur er 34 EUR en 44 EUR fyrir daginn. Að sjálfsögðu þarf ekki að vera á golfbíl og ekkert mál er að ganga vellina. Hægt að leigja rafmagnsgolfkerrur.
Golfbíll er innifalinn í vallargjöldum á Arcos Gardens og á Montecastillo.

Golskálarnir:
Golfskálarnir á Novo Sancti Petri og Costa Ballena bjóða upp á ýmislega þjónustu. Skemmtilegir barir og veitingastaðir sem bjóða upp á mat af matseðli jafnt sem smárétti. Þar eru góðir búningsklefar með sturtu nuddpotti og gufubaði, þar eru einnig ágætis golfverslanir þar sem hægt er að kaupa nauðsynlegustu golfvörur. Auk þess eru vel vöktuð geymsluherbergi fyrir golfsettin.

Golfvörur:
Golfvörur hér heima eru bæði ódýrari og oft í meira úrvali en í golfverslunum á áfangastöðum okkar erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa falleg golfföt úti ef fólk vill eiga eitthvað sem minnir á og er merkt viðkomandi golfstað.

Klæðnaður:
Reglur um klæðaburð eru almennt ekki mjög strangar. Bannað er eins og annarsstaðar að leika í gallabuxum og íþróttabuxum svo og í kragalausum bolum. Hlýrar á kvennmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm. breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði, þ.e. síðum golfbuxum eða stuttbuxum (Bermuda), í skyrtu með kraga eða pólóbol og golfskóm (ath. stáltakkar eru mjög víða ekki leyfðir). Gott getur verið að hafa þunna peysu með á völlinn og góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnfatnað með í golfferðum.

Spilahraði:
Æskilegt er að leikið sé eftir Stableford punktafyrirkomulagi og er boltinn þá tekinn upp eftir að komið er 3 til 4 höggum yfir par. Það hefur enginn gamann af hægagangi í golfi og því minnum við alla á að halda alltaf vel í við næsta ráshóp á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn.

Vallargjöld:
Fararstjóri mun sjá um alla rástíma að morgni en fólk sér sjálft um að leigja og greiða fyrir golfbíl, sé hans óskað, í klúbbhúsinu áður en farið er út að spila. Ef menn ætla að spila fyrir utan okkar staðfestu hóprástíma þurfa þeira að panta tíma sjálfir í "Pro-Shop".

Æfingasvæði:
Costa Ballena og Novo Sancti Petri bjóða upp á bestu aðstæður til æfinga. Æfingabolta til upphitunar fyrir hringi fáið þið hjá fararstjórum. Ekki er hægt að biðja um kort í golfverslun.

Fjarlægðir:
Barcelo hótelið á Costa Ballena er staðsett í þriggja mínútna fjarlægð frá golfskálanum en frá Iberostar hótelinu á Novo Sancti Petri er um 5 mínútna gangur á völlinn. Fyrsta daginn sjá fararstjórarnir um að koma golfsettunum á golfvöllinn en kylfingarnir sjálfir þurfa að koma þeim fyrir inni í geymslu inn af golfversluninni.

ATH.
Við viljum minna fólk á sólarvörnina og það að drekka nóg af vatni, því ef heilsan er ekki í lagi er mun erfiðara að njóta alls þess sem golfið á Spáni hefur upp á að bjóða.

Farsímar:
Farsímar fararstjóra á Spáni:
Hörður Arnarsson: 653503095
Magnús Birgisson: 653503100
Ragnhildur Sigurðardóttir: 653503074
Karl Ómar Karlsson: 653503039

Hægt er að hringja beint úr íslenskum síma og gjaldið er þá svipað og verið væri að hringja innanlands.

Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan á leik stendur.


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur