Netklúbbur

aqualand2_240x160

Toppurinn
- frábært fjallaævintýri í þjóðgarðinum umhverfis Teide þar sem yngsta, elsta og hæsta eldfjall Tenerife er skoðað. Farið upp á toppinn á hæsta fjalli Spánar, 3.718 m.y.s., margir fallegir staðir skoðaðir, farið í vínsmökkun og vínfræðslu, grillað & gróðursett. Splunkuný ferð sem aðeins Heimsferðir bjóða upp á hér á Tenerife og slegið hefur í gegn í vetur.

Vestrið - hringferð um hina fallegu eyju Tenerife þar sem brot af því besta er skoðað, með áherslu á hina gróðursælu vesturströnd eyjunnar: Hinn gullfallegi Mascá-dalur með hinum litla týnda þorpi, gamli höfuðstaðurinn Garachico sem fór undir hraun, elsta drekatréð nærri Icod de los Vinos og gamla hefðarborgin La Orotava heimsótt. Hringferðin klikkar aldrei.

Austrið - skemmtileg ferð á píramídaslóðir á austurströnd Tenerife, þar sem fetað er í fótspor norska ævintýra- og fræðimannsins Thor Heyerdahl sem helgaði líf sitt rannsóknum á þessum merkilegu byggingum. Eftir hina margra alda gömlu píramída er haldið til sjávar þar sem boðið er upp á margrétta smáréttahlaðborð, ekta Tapas-rétti, ásamt léttvínum heimamanna. Fræðandi, notaleg og bragðgóð hálfsdagsferð.

La Gomera - nágranneyjan og náttúruperlan La Gomera heimsótt þar sem farið er yfir sögu eyjunnar og eyjaskeggja. Hinir dularfullu frumbyggjar eyjunnar koma við sögu ásamt hina undarlega flaututungumáli heimamanna. Minnsti regnskógur veraldar einnig heimsóttur. Frábær eyja heim að sækja.

Kafbátasigling - einstakt tækifæri og einstök upplifun um borð í hinum gula kafbáti.

Verslunarferð - beint í H&M. Þarf ekkert að hafa fleiri orð um þessar hreinræktuðu skemmtiferð Íslendinganna...

Þessar ferðir eru bókaðar þegar út er komið, annað hvort á kynnisfundi daginn eftir komu eða í viðtalstímum hjá fararstjóra.
Nánari upplýsingar um m.a. brottfarartíma, verð og annað gefur fararstjóri.

Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur