Netklúbbur


Hagnýtar upplýsingar


KANARÍEYJAR

Hagnýtar upplýsingar – Vetur  2011-2012

FYRIR BROTTFÖR

Nauðsynlegt er að hafa gilt vegabréf í ferð til Spánar eins og til annarra landa. Gott ráð er að hafa líka ljósrit af vegabréfinu með í för. Við bendum farþegum á Evrópska sjúkratryggingakortið sem veitir rétt á allri nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á ríkisreknum stofnunum í löndum EES. Nánar hjá Tryggingastofnun ríkisins (www.tr.is). Ef viðskiptavinir kjósa að fara til einkarekinnar læknastofu greiða tryggingarfélög oft þann kostnað ef fólk er tryggt fyrir því. Oftast þarf þó sjúklingurinn að bera einhverja sjálfsábyrgð, en það fer alveg eftir tryggingarskilmálum hvers og eins. Nauðsynlegt er ð taka með sér tryggingakort frá ykkar tryggingafélagi. ATH. Farþegar bera ábyrð á sínum eigin tryggingum, Heimsferðir mæla með því að allir farþegar ath. þær vel áður en ferð hefst. Farþegar með erlent vegabréf þurfa sjálfir að kanna hvort þeir þurfa vegabréfsáritun inn í landið.

 

FARARSTJÓRAR

Farar- og skemmtanastjórar Heimsferða á Kanarí eru Anna Lea Björnsdóttir og Guðmundur Brói Sigurðsson. Þjónustu/neyðarsími fararstjóra er 669-298899. Ef hringt er úr íslenskum síma 0034 669-298899. Þjónustusími er frá kl. 09:00 – 17:00 virka daga. Neyðarsími er frá kl. 17:00 – 09:00 og um helgar.

 

VIÐ KOMU

Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum í Las Palmas og ekið er í rútu frá flugvelli til hótels fyrir þá sem það kjósa. Tekur sú ferð um 30 mínútur. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum.

 

KYNNISFUNDUR

Daginn eftir komu er kynnisfundur með fararstjórum Heimsferða og ráðleggjum við öllum að mæta, því réttar upplýsingar í byrjun ferðarinnar geta gert gæfumuninn. Þar eru Kanaríeyjar kynntar, hvað er spennandi í boði meðan á dvöl stendur, hvað ber að varast og hverju má ekki missa af.

 

HÓTELIÐ

Ef eitthvað er að varðandi þjónustu hótelanna eða aðbúnaður á herbergi eða íbúð ekki í lagi, talið þá við hótelafgreiðslu eða látið fararstjóra vita, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið.

 

TÍMAMISMUNUR

Klukkan færist aftur um eina klukkustund aðfaranótt sunnudagsins 31. október, þegar klukkan er 02:00 um nóttina breytist klukkan og verður 01:00. Klukkan færist fram um eina klukkustund aðfaranótt sunnudagsins 27. mars, þegar klukkan er 01:00 um nóttina breytist klukkan og verður 02:00.

 

LÆKNAR OG APÓTEK

Hægt er að ná í enskumælandi lækni allan sólarhringinn á Centro Medico Iguazu, sími 928 764894. og Euro Nordic í Buenos Aires, sími 928 771510. Ef leita þarf á sjúkrahús, Clinica Roca sími 928 769004 og San Roque Maspalomas með íslenskum starfsmanni, Rúna frá 09:00 15:00, sími 928 012600, ef ekki næst í fararstjóra, biðjið þá um aðstoð í gestamóttöku. Áður upptaldar sjúkrastofnanir eru einkareknar. Apótek eru opin frá 09:30-13:00 og 17:00-20:00 mánud. - föstud. Eitt til tvö apótek (farmacia ) eru á vakt um helgar og nætur. Hótelafgreiðslur og leigubílstjórar vita flest hvaða apótek er á vakt.

 

BANKAR

Bankar eru víða og eru opnir virka daga frá 09:00-14:00, laugardaga frá 09:00-12:00.

 

BÍLALEIGUBÍLAR

Fyrir milligöngu fararstjóra er hægt að leigja bílaleigubíla, íslenskt ökuskírteini nægir. Munið að panta með góðum fyrirvara. Við mælum með Avis bílaleigunni. Nánari upplýsingar veita fararstjórar. Einnig er hægt að bóka bílaleigubíla á skrifstofu Heimsferða fyrir brottför.

 

FRÉTTIR

Hægt er að fylgjast með íslenskum sjónvarps- og útvarpsfréttum hjá Foto Harry á Ítalíugötu og hjá veitingastaðnum Ok. Eins eru fréttir í hádeginu á veitingastaðnum El Duke sem er á neðstu hæð Roque Nublo hótelsins.

 

GOLF

Mjög góð aðstaða er í CAMPO DE GOLF MASPALOMAS sími 928 762581. Gott er að panta tíma fyrirfram, en sé um stóran hóp að ræða aðstoða fararstjórar við að panta. Aðrir góðir golfvellir eru; MELONERAS GOLF sími 928 14 53 09, SALOBRE GOLF  sími 928 01 01 03 og CAMPO DEL GOLF BANDAMA sími 928 350104 ath. að þangað eru um 1 klst. akstur.

 

HÓTELREGLUR

Á öllum gististöðum eru strangar reglur um umgengni og eru gestir beðnir að kynna sér þær. Ætlast er til að ró sé komin á kl. 24:00. Vinsamlegast virðið þessar reglur og sýnið öðrum tillitssemi.

 

LEIGUBÍLAR

Leigubíla er yfirleitt auðvelt að finna. Innheimt er eftir gjaldmæli, góð regla er að spyrja um verð áður en lagt er af stað. Gott er að taka niður leigubílanúmer bílsins áður en lagt er af stað ef eitthvað skyldi verða eftir í bílnum.

GREIÐSLUKORT

Við ráðleggjum ferðalöngum að hafa slík kort með sér þó ekki sé nema öryggisins vegna. VISA og EURO eru jafngild. Þægilegasti mátinn er að taka út peninga á kortin í hraðbönkum við bankaútibú, en þá þurfa korthafar að vita PIN-númerið sitt. Geymið aldrei PIN-númer hjá kortinu og verið aldrei með of mikla fjármuni á ykkur. Ef kort tapast, hringið í viðkomandi neyðarnúmer og látið loka kortinu: VISA (00354) 525 2000 eða 525 2200.  MASTERCARD (00354) 533 1400.

 

MAGAVEIKI

Margir verða fyrir því að fá í magann og vilja gjarnan kenna matnum um.  Í fæstum tilfellum er um matareitrun að ræða, heldur er um breytt loftslag, breyttar svefnvenjur eða breytt mataræði að ræða, einnig ef notaður er mikill klaki í drykki. Ef þið kennið ykkur meins, hafið þá samband við fararstjóra eða lækni.

 

MARKAÐUR

Útimarkaður er haldinn alla miðvikudaga og laugardaga í Maspalomas.  Hann er opinn frá 09:00-13:00.  Takið strætisvagn nr. 72 eða leigubíl. Í öllum helstu þorpum á eyjunni eru útmiarkaðir, vikulega eða einn dag í viku. Munið að prútta vel.

 

PÓSTUR

Á flestum gististöðum er hægt að kaupa frímerki, einnig á þeim stöðum sem selja póstkort. Aðalpósthúsið er merkt inn á kortið ykkar ef þið þurfið að sækja þangað eða senda skeyti.

 

RAFMAGN

Hægt er að nota öll algeng tæki hér eins og heima á Íslandi. Sami straumur og á Íslandi. Varist samt innstungur á baðherbergjum, þær eru oft eingöngu ætlaðar rakvélum

 

SÍMI

Hægt er að hringja beint frá Kanarí til Íslands. Veljið fyrst 00354 fyrir Ísland og veljið síðan viðkomandi númer á Íslandi. Ódýrara er að hringja úr almenningssíma eða símstöð, en af hóteli. Í kjallara íbúðarhótelsins Los Molinos við Tirajana götuna er ódýr símstöð. Athugið að ódýrast er að hringja eftir kl 22:00 úr almennum símum.

 

SÓLIN

Farið varlega fyrstu dagana í sólinni á meðan hver og einn finnur hve vel hann þolir sólina og notið alltaf sterka sólarvörn. Þá er höfuðfat nauðsynlegt þegar sólin er sterk. Við sólbruna eru til mörg góð húsráð, en það besta er kæling!!!! Sé um meiriháttar bruna að ræða ber að hafa tafarlaust samband við lækni.

 

STRÆTISVAGNAR

Þeir eru grænir að lit og ganga í allar áttir. Mjög auðvelt er að fara t.d. með vagni inn til Las Palmas sá vagn er nr: 30. Vagninn sem gengur til Puerto Rico er nr: 32, en vagninn sem fer í Palmitos Park er nr: 45. Flestir vagnar eru á 20 mín fresti. Sjá kort um aðal stoppistöð. Nánari upplýsingar í hótelmöppu Heimsferða.


TANNLÆKNIR

Ef þið þyrftuð að leita til tannlæknis má benda á tannlæknastofuna Maya sími 928 763280 og tannlæknastofuna í Euro Nordica 928 771510 eða hafið samband við fararstjóra.

 

UPPLÝSINGAMAPPA

Á hverjum gististað er upplýsingamappa Heimsferða. Þar eru settar allar helstu upplýsingar og þau skilaboð sem fararstjórar þurfa að koma til farþega. Það er góð regla að líta a.m.k. einu sinni á dag í möppuna, vinamlegast ekki fara með hana á herbergin.

 

VATN

Vatnið í krönunum er drykkjarhæft í flestum tilfellum en við viljum benda fólki á að kaupa drykkjarvatn, sem inniheldur steinefni (mineral), þar sem steinefnin tapast úr líkamanum í hitanum. 1 – 2 lítrar af vatni á dag er hæfilegur skammtur ásamt öðrum drykkjum. Hjúkrunarfólk á Íslandi bendir á orkudrykkinn Gatorade til að fá steinefni og sölt fyrir líkamann.

 

ÞJÓRFÉ

Enn er það siður á Spáni að gefa þjórfé, en aðeins ef þið eruð ánægð með þjónustuna. Vaninn er að gefa um 5% - 10% á veitingastöðum, en herbergisþernum er ágætt að gefa 3 – 5 evrur á viku allt eftir því hvort þið eruð ánægð eða ekki. Eins er siður að gefa bílstjórum einhverja smámynt í lok ferðar. Athugið að enginn er skyldugur að gefa þjórfé !!!

 

ÞVOTTAHÚS

Á sumum gististöðum okkar er hægt að láta í þvott, athugið í gestamóttökum. Ef ekki er um slíka þjónustu að ræða hjá ykkur, þá bendum við á tvö þvottahús þar sem þið setjið í góðan plastpoka (5 kg. ca.) síðan er hægt að sækja hann yfirleitt daginn eftir.  Munið að taka það fram ef þið viljið láta strauja eða ekki. Eitt þvottahús er í YUMBO CENTRUM og annað í SAN FERNANDO CENTRUM.

 

ÖRYGGISHÓLF

Þau heita á spönsku "Caja fuerte", en á ensku "safety box". Við viljum benda gestum á að geyma greiðslukort, gjaldeyri, vegabréf, farseðla og önnur verðmæti í læstu öryggishólfi, sem fást leigð gegn gjaldi í gestamóttöku. Athugið að farþegar eru sjálfir ábyrgir fyrir lykli hólfsins.

 


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur