Heimsferðir bjóða nú annað árið í röð beint leiguflug til þessarar fögru eyja í Atlantshafinu, þar sem þú finnur fegurstu strendur heimsins, eitt besta loftslag í heimi og fyrst og fremst, glæsilega gististaði þar sem þú nýtur þín í fríinu við hreint frábærar aðstæður.
Fuerteventura býður ferðamenn velkomna, stolt og tilkomumikil, með stórbrotinni fegurð og hreinum línum hinnu hvítu stranda, einstökum litbrigðum fagurra jarðlita og túrkisbláu hafinu. Ferðamennskan er í mikilli uppbyggingu á eyjunni og stöðugt rísa ný og glæsileg hótel. Á Fuerteventura bjóða Heimsferðir farþegum sínum allsþrjá áfangastaði; Corralejo á norðurenda eyjunnar, Jandia á suðuroddanum og glæsihótelið Sheraton Beach & Golf Resort við Caleta de Fuste skammt frá flugvellinum.
Fuerteventura býður allt það sem maður getur óskað sér í sumarfríinu; einstakar strendur og frábært loftslag, glæsilega gististaði með frábærum aðbúnaði og endalausa afþreyingarmöguleika. Eyjan er næst stærst Kanaríeyjanna og liggur hún næst Afríku í eyjaklasanum. Í raun skilur aðeins mjótt sund eyjuna frá ströndum Marokkó og Saharaeyðimörkinni. Heimsferðir bjóða þér nú þennan frábæra áfangastað á verði sem er hreint út sagt ótrúlegt.
Lengd flugs milli Íslands og Fuerteventura: 6 klst.
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +1 klst. á sumrin