Netklúbbur

Gott að vita

Fróðleiksmolar um land og þjóð

Nafn landsins á tyrknesku: Türkiye Cumhuriyeti
Fólksfjöldi: 70 milljónir
Aldur: 50% þjóðarinnar er undir 25 ára aldri.
Fólksfjölgun: Um ein milljón manns á ári.
Landsvæði: 780.000 km2 – 97% í Litlu-Asíu og 3% í Evrópu.
Höfuðborg: Ankara með um 8 milljónir íbúa.
Stærsta borgin: Istanbul með um 15 milljónir íbúa.
Stjórnskipan: Lýðveldi.
Trú: Trúfrelsi er í Tyrklandi. Yfir 90% Tyrkja eru múslimar.
Tungumál: Tyrkneska.
Gjaldmiðill: Tyrknesk líra TRY. Gengi (m.v. 11. jan. '11) 1 tyrknesk líra =" 72,80" krónur.
Stærsta stöðuvatn: Van stöðuvatnið (4,000 km2).
Lengsta áin: Kizilirmak (1,150 km).
Hæsti tindur: Fjallið Ararat sem er 5.165 metra hátt. Sá staður þar sem örkin hans Nóa lenti eftir syndaflóðið skv. biblíunni.

Fleiri hagnýtir punktar!

Samgöngur
Dolmus strætisvagninn er ferðamáti þeirra innfæddu og tilvalið að nýta sér hann. Áfangastaður og verð standa venjulegast í glugga vagnsins. Bílstjóranum er greitt fargjaldið. Yfirleitt nægir að veifa Dolmusinum og þá stoppar bílstjórinn – hefðbundnar stoppistöðvar eru því minna atriði en við eigum að venjast. Að sama skapi dugir að láta bílstjóra vita (STOP) þegar maður er kominn þangað sem maður ætlaði. Nóg er af leigubílum í Bodrum og nágrenni.

Bílaleigubílar
Auðvelt er að leigja bílaleigubíl. Fararstjórar aðstoða við slíkt á staðnum.

Gjaldmiðill, greiðslukort o.fl.
Gjaldmiðillinn í Tyrklandi er tyrknesk líra (TRY). 1 líra er síðan 100 kurus (sbr. aurar). Gengi (m.v. 11. feb. '11). 1 tyrknesk líra = 72,80 íslenskar krónur.
Unnt er að nota greiðslukort (s.s. VISA og MasterCard) mjög víða.

Verslun
Í Bodrum er frábært að versla og fjölbreyttir möguleikar. Heimamenn streyma að á hinn vikulega innimarkað en þar má m.a. finna mikið úrval alls kyns minjagripa og varning sem er dæmigerður fyrir svæðið. Þröngar göturnar í miðbænum eru fullar af verslunum sem selja varning af öllu tagi, m.a. skartgripi, hönnunar- og “gervi"-hönnunarvarning af ýmsu tagi, vefnaðarvöru, fatnað, töskur og svo mætti lengi telja. Í Oasis Centre verslunarmiðstöðinni, sem er stutt frá Bodrum eru um 200 verslanir af öllu tagi auk veitingastaða, kvikmyndahúss o.fl. (www.oasisbodrum.com).

Markaðir í Bodrum og nágrannabæjum
Mánudagar          Güvercinlik
Þriðjudagar          Bodrum (vefnaðarvara og fatnaður)
Miðvikudagar       Ortakent og Gümüslük
Fimmtudagar        Bodrum (matur) og Yalikavak
Föstudagar          Bitez og Bodrum (matur)
Laugardagar        Turgutreis (matur og föt)
Sunnudagar         Gumbet og Mumcular. Flóamarkaður í Bitez fyrsta sunnudag hvers mánaðar.

Næturlífið
Það er sannkallaður stórborgarbragur á næturlífinu í Bodrum og hér finna allir eitthvað við sitt hæfi. Nefna má úti-diskótekið Halikarnas sem er óhemju vinsælt og býður upp á stórkostlegar ljósa- og lasergeisla sýningar á kvöldin. Næturlífið í Gumbet er líka mjög fjörugt og almennt má segja að í bæjunum er nóg um að vera á kvöldin og umtalsvert úrval af afþreyingu í boði, hvort heldur er veitingastaðir, barir, kaffihús, næturklúbbar og fleira.

Pósthús (PTT)
Pósthúsin eru auðkennd með PTT. Hér getur þú póstlagt bréf eða kort og keypt símakort til að hringja heim í fjölskyldu og vini.

Vatnið
Það er talið öruggt að bursta tennurnar úr kranavatninu. Mörgum gæti þó þótt vatnið salt miðað við það sem við eigum að venjast. Vatn á flöskum er fáanlegt í flestum verslunum.

Þjórfé
Veitingastaðir; á fínni veitingastöðum er þjórféð stundum innifalið svo það er um að gera að skoða reikninginn vel. Ef það er ekki innifalið þá er yfirleitt miðað við að greiða ca. 10% þjórfé. Leigubílar; óþarfi er að borga leigubílstjórum þjórfé nema um sé að ræða að hann hjálpi til með töskuburð eða slíkt sem þér þykir ástæða til að umbuna sérstaklega fyrir. Hótel; það þykir við hæfi að greiða hótelþjónum þjórfé hjálpi þeir til við töskuburð o.þ.h. (porter).


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur