Netklúbbur

Hagnýtar upplýsingar

BENIDORM - SPÁNN - Hagnýtar upplýsingar 2012

FYRIR BROTTFÖR
Nauðsynlegt er að hafa gilt vegabréf í ferð til Spánar eins og til annarra landa. Gott ráð er að hafa líka ljósrit af passanum með í för.
Farþegar með erlent vegabréf þurfa sjálfir að kanna hvort þeir þurfa vegabréfsáritun inn í landið Við bendum farþegum á Evrópska
sjúkratryggingakortið sem veitir rétt á allri nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á ríkisreknum stofnunum í löndum EES. Nánar hjá
Tryggingastofnun ríkisins (www.tr.is eða www.sjukra.is) .Ef viðskiptavinir kjósa að fara til einkarekinnar læknastofu greiða
tryggingarfélög oft þann kostnað ef fólk er tryggt fyrir því. Oftast þarf þó sjúklingurinn að bera einhverja sjálfsábyrgð, en það fer
alveg eftir tryggingarskilmálum hvers og eins..Gott er að fá tryggingarkort áður en ferð hefst hjá sínu tryggingarfélagi til að sýna ef
eitthvað kemur fyrir,flýtir mikið fyrir allri afgreiðslu.

VIÐ KOMU
Fararstjóri Heimsferða á Benidorm, Birgitte Bengtsson tekur á móti hópnum á flugvellinum í Alicante. Ekið frá flugvelli til
hótels, tekur sá akstur um klukkustund. Á meðan heldur hún eins skonar kynnifund í rútunni um all það helsta á Benidorm bæði
kynnisferðir og annað. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. Ath ef
farangur skemmist þarf að tilkynna það á flugvelli,ekki er hægt að fá skýrslu gerða eftir að flugvöllurinn er yfirgefinn.Farangur er
ekki bættur ef skýrslan er ekki með.

BROTTFÖR - FARARSTJÓRAR
Farþegar vinsamlegast lítið í upplýsingamöppu Heimsferða varðandi heimflugið ykkar daginn fyrir brottför. Farþegar sem aðeins
kaupa flugsæti bera sjálfir ábyrgð á að fá brottfarartíma staðfestan og geta hringt á skrifstofu Heimsferða 00354 5951000

Tafir í flugi
Stundvísi er keppikefli Heimsferða en óhjákvæmilega geta orðið tafir á flugum í öllum flugrekstri sem ferðaskrifstofan getur á engan
hátt borið ábyrgð á. Verði töf meira en 3 tímar fer í gang sérstakt ferli hjá viðkomandi flugfélagi, s.s. upplýsingagjöf á flugvelli og
jafnvel matarmiðaúthlutun. Fylgjast þarf því vel með í kallkerfi flugvallar og gera vart við sig hjá viðkomandi þjónustuaðila
(handling agent). Gott er að hafa hugfast að fyrstu og bestu upplýsingarnar fást á flugvellinum og ferðaskrifstofa eða fararstjóri fær
nákvæmlega sömu upplýsingar og farþegi. Verði veruleg töf er gott að hafa hugfast að jákvætt hugarfar er góður ferðafélagi ?.

VIÐTALSTÍMAR
Fararstjórar eru með fasta viðtalstíma fyrir alla gististstaði Heimsferða. Í viðtalstímum fer fram skráning farþega í kynnisferðir og
alhliða aðstoð við gesti. Hikið ekki við að leita strax til fararstjóra ef um veikindi er að ræða. Neyðarnúmer fararstjóra er í
upplýsingamöppu Heimsferða á hverju hóteli.
Ef eitthvað er að varðandi þjónustu hótelanna eða aðbúnaður á herbergi eða íbúð ekki í lagi, verður að láta fararstjóra vita
strax, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið.

UPPLÝSINGAMAPPA
Á hverjum gististað er upplýsingamappa Heimsferða. Á henni er að finna hagnýtar upplýsingar,upplýsingar um kynnisferðir og öll
þau skilaboð sem fararstjórar þurfa að koma til farþega.

SÓLIN
Það fyrsta sem fólk þarf að vara sig á. Það er mjög fljótgert að eyðileggja sumarleyfið með því að brenna illa. Farið varlega fyrstu
dagana í sólinni á meðan hver og einn finnur hve vel hann þolir sólina og notið alltaf sólarvörn.

LÆKNAR
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá ENSKUMÆLANDI lækni heim á hótel með milligöngu fararstjóra. Upplýsingar
um læknisþjónustu er að finna í upplýsingamöppu Heimsferða á hótelunum. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisreknar
heilsugæslur og sjúkrastofnanir er að ræða. EKKI á einkareknum stofnunum.ATH. að vera vel tryggð.

KREDITKORT
Yfirleitt er hægt að nota kreditkort, ráðleggjum við ferðalöngum að hafa slík kort með sér þó ekki sé nema öryggisins vegna. VISA
og EURO eru jafngild. Einnig er hægt að taka út peninga á kortin í hraðbönkum, en þá þurfa korthafar að vita PINnúmerið sitt.
Sumstaðar er beðið um vegabréf þegar greitt er með kreditkorti. Ef kort tapast, hringið í viðkomandi neyðarnúmer og látið loka
kortinu: VISA (00354) 525 2000 eða 525 2200. EURO (00354) 533 1400.

DRYKKJARVATN
Kranavatnið er drykkjarhæft en við mælum frekar með vatni á flöskum til drykkjar, þó ekki sé nema bragðsins vegna.

ÍSLENSKUR RÆÐISMAÐUR
Juan José Campus, Edif. Casa de las Flores, Avda. Mediterráneo S/N, sími 96 585-0863 og 96 585-1667.

ÚTIMARKAÐUR
Útimarkaður er tvisvar í viku á Benidorm, á miðviku- og sunnudögum frá 09:00-13:00, í Altea á þriðjudögum.

UMGENGNISREGLUR GISTISTAÐA
Ætlast er til að ró sé komin á kl. 24:00 og eru gestir vinsamlegast beðnir að taka tillit til þess. Aðrar mikilvægar reglur er að finna í
hótelmóttöku og eru farþegar beðnir um að kynna sér þær. Farþegar sem brjóta þessar reglur eiga á hættu að vera vísað af
gististaðnum.

OPNUNARTÍMI BANKA OG PÓSTHÚSA
Bankar eru opnir alla virka daga frá 09:00 - 14:00. ATH! BANKAR OPNA ALDREI SEINNI PART DAGS.
Opnunartími pósthúsa er frá 09:00-14:00 mánud.-föstud. og frá 09:00-13:00 á laugardögum. Frímerki má kaupa í tóbaksbúðum.

OPNUNARTÍMI VERSLANA
Verslanir eru opnar frá 09:30-13:30 og 16:30-20:30 mánud.-föstud. Flestar verslanir eru opnar fyrir hádegi á laugardögum en sumar
hafa lokað eftir hádegi. ATH! OPNUNARTÍMI VERSLANA ER BREYTILEGUR.

OPNUNARTÍMI APÓTEKA
Opnunartími er frá 9:00 - 13:00 og 16:30 - 20:00. Nætur og helgidagaþjónusta. Á Avda. Mediterraneo er að finna apótek sem opið
er allan sólarhringinn alla daga vikunnar.
Leigubílstjórar vita yfirleitt hvaða apótek er á vakt hverju sinni sem og starfsfólk í hótelmóttöku.

ÞJÓRFÉ
Það tíðkast enn að gefa þjórfé á Spáni, þeir sem þess vænta eru þjónar á veitingastöðum, barþjónar, hárgreiðslumeistarar,
ræstingastúlkur á hóteli og bílstjórar í kynnisferðum. Vaninn er að gefa 5-10%.

GOLF
Rétt fyrir ofan Benidorm eru 2 góðir 18 holu vellir. Einnig er góður 9 holu golfvöllur í Altea, um 20 mínútna akstur frá Benidorm og
auðvelt að komast þangað með leigubíl eða bílaleigubíl. 18 holu golfvöllur er skammt frá Alicante, en þangað er um 50 mínútna
akstur.

MATUR
Matur á Spáni er mjög góður, mikið úrval frábærra veitingastaða frá öllum heimshornum er að finna í Benidorm. Óhætt er að mæla
með eftirfarandi veitingastöðum:
TOSCANA (calle Gerona) mjög góður ítalskur staður
EL CORRAL DE POLLO (kjúklingastaður) nálægt gatnamótum Evrópugötunnar og c/Lepanto
EL PASO ( spænskur). Í Altea þorpinu
OUSTAU ( alþjóðlegur). Mjög glæsilegur veitingastaður í Altea þorpinu.
L’OBRADOR (ítalskur). Huggulegur veitingarstðaur í Altea þorpinu.
MAMA LOEN (calle Gerona) . Ítalskur staður.
TOPO GIGIO (alþjóðlegur) mjög glæsilegur veitingastaður stutt frá Benidorm.

Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur