Netklúbbur


Vínarborg og GYÖR í Ungverjalandi

Vínarborg og GYÖR 
Bratislava – Budapest

27. apríl - 1. maí 2012

Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir

gyor-hungary-t1

Skemmtileg 5 daga sérferð til Vínarborgar í Austurríki og Györ í Ungverjalandi. Dvalið í 2 nætur í Vínarborg og 2 nætur í Györ. Í Vínarborg er skemmtileg blanda af gamla og nýja tímanum. Keisaralegt yfirbragð setur mikinn svip á borgina, enda var þar höfuðsetur austurrísku keisaranna í aldaraðir. Fallegar byggingar og hallir á nær hverju horni. Vínarborg ber titilinn tónlistarborg með reisn. Hér bjuggu Mozart , Beethoven , Schubert og Straussfeðgarnir ásamt mörgum öðrum listamönnum. Mörg áhugaverð söfn eru í borginni og má t.d. nefna Listasögusafnið þar sem m.a. er hægt að skoða verk eftir Rembrandt , Rubens og Breugel.
Á þriðja degi er ekið frá Vín til Györ með viðkomu í borginni Bratislava sem er höfuðborg Slóvakíu. Þar verður dvalið um stund og farið í kynnisferð um borgina. Þá er ekið til GYÖR sem er  í norðvestur hluta Ungverjalands. Borgin stendur við ármót Rába árinnar og þverár Dónár. Afar falleg og vinaleg borg með litríkum miðbæ og stórkostlegum byggingum í barrok stíl. Mikið af sögulegum minjum, og er það aðeins höfuðborgin Budapest sem státar af fleiri. Györ hefur hlotið Evrópu-verðlaunin fyrir varðveislu og viðhald sögulegra bygginga í gamla miðbænum . Kirkjur, hallir, söfn og  þröng hellulögð stræti þar sem notalegt er að fá sér göngutúr, skoða sig um og njóta líðandi stundar. Úrval kaffihúsa, veitingastaða, spennandi sérverslana og næturklúbba eru einnig að finna í Györ. 

Ferðatilhögun:          
  
27. apríl Flug frá Keflavík til Budapest. 
Mæting á Keflavíkurflugvelli kl 9:30. Flugtak kl 11:30. Lending í Budapest kl 17:50 að staðartíma. Ekið frá flugvelli til Vínarborgar sem er  um 220  km akstur.  Á leiðinni er stoppað á veitingastað þar sem kvöldverður verður framreiddur. 
Dvalið  á  Hótel Ananas í Vínarborg  í 2 nætur.

Hotel Ananas * * * +
Rechte Wienzeile 93-95 / Sonnenhofgasse 8-10, 1050 Vín.  | Sími .: +43 (1) 546 20  http://www.austria-trend.at/Hotel-Ananas
ananas
Gott  hótel miðsvæðis í borginni. Hótelið er um 100 metra frá Pilgramgasse neðanjarðar lestarstöðinni og tekur um það bil 5 mínútur með lestinni að komast niður í miðbæ. Mariahilferstrasse verslunargatna er í göngufæri frá hótelinu.  Á hótelinu eru 534 loftkæld herbergi með gervihnattarsjónvarpi, öruggishólfi og minibar. Hárþurrka á baði.  Veitingastaður, setustofa og bar. Nettenging gegn aukagjaldi. 
 
28. apríl
vienna2-t1Kynnisferð um  Vínarborg  sem  er skemmtileg blanda af gamla og nýja tímanum. Keisaralegt yfirbragð setur mikinn svip á borgina, enda var þar höfuð aðsetur austurrísku keisaranna í aldaraðir. Fallegar byggingar og hallir á nær hverju horni. Vínarborg ber titilinn tónlistarborg með reisn. Hér bjuggu Mozart , Beethoven , Schubert og Strauss-feðgarnir ásamt mörgum öðrum.  Mörg áhugaverð söfn eru í borginni og má t.d. nefna Listasögusafnið þar sem m.a. er hægt að skoða verk eftir Rembrandt , Rubens og Breugel . Í borginni eru margir frábærir veitingastaðir og barir að ógleymdum hinum fjölmörgu frægu Vínar-kaffihúsum.  Í kynnisferðinni er byrjað á því að aka  “Hringinn“ svokallaða, eða Ringstrasse, þar sem margar þekktustu og fegurstu  byggingar borgarinnar er að finna: Ríkisóperan Þinghúsið, Ráðhúsið, Listasögusafnið og margt fleira.  Þá er ekið að Hundertwasserhúsinu, fjölbýlishúsi sem listamaðurinn Hundertwasser hannaði og er mjög litskrúðugt og sérkennilegt hús.  Í eftirmiðdaginn er göngutúr um miðborgina þar sem við sjáum Stefáns kirkjuna, Hofburg keisarhöllina og glæsilegar verslunargötur. Afar  lifandi miðbær þar sem  Sachertertur og margt fleira kemur við sögu.   Kvöldverður á hótelinu.

29. apríl 
bratislavaEftir morgunverð er ekið til Bratislava höfuðborgar Slóvakíu. Um 65 km er á milli þessara borga. Þessi fallega höfuðborg Slóvakíu við Dóná lætur engan ósnortinn.  Dóná rennur í geng um borgina.  Bratislava er eina höfuðborg heims sem á landamæri að tveimur löndum, Austurríki og Ungverjalandi. Bratislava er stærsta borg Slóvakíu og miðstöð viðskipta með ýmsar iðnaðarvörur. Í ferð okkar skoðum við byggingar frá 13. öld kirkjur, hallir óperuhúsið og ráðhúsið. Og njótum þess einnig að rölta um, kíkja á veitingahús eða kaffihús og njóta lífsins. Um eftirmiðdaginn er ekið til Györ í Ungverjalandi þar sem gist verður næstu 2 nætur.  Kvöldverður á hótelinu. 

Hotel Rába *
* *
Árpád út 34, 9022 Györ,  Ungverjalandi      Sími. : (+36)96/889 400 * http://hotel-raba-gyor.h-rez.com
9176
Gott 3*  hótel í gamla bænum. Á hótelinu eru 6 hæðir með 155 herbergjum. Rúmgóð herbergi með loftkælingur, minibar, gervihnattar sjónvarpi / kvikmyndarás (gegn gjaldi) og síma. Hárþurrka á baðherbergi. Öryggishólf í móttöku hótelsins. Veitingastaður og bar. Gufubað og líkamsræktar aðstaða. Hárgreiðslustoða. Nettengin í móttöku.

30. apríl 
Kl. 9:00    Eftir morgunverð verður haldið af stað í kynnisferð um borgina Györ. Kynnisferðinni líkur með vínsmökkun í Zichy höllinni skammt fyrir utan miðbæinn. Eftirmiðdagur frjáls.  Kvöldverður á hótelinu.

1. maí
budapest_dona_thinghus_240x200Eftir morgunverð er ekið til Budapest þar sem farið verður í stutta kynnisferð um borgina áður en haldið er út flugvöll.   Flugtak frá Budapest er kl 16:00. Lending á Keflavíkurflugvelli kl 18:30 að staðartíma. 

Verð á mann:
Kr.  145.900-  á mann í  tvíbýli.
Kr.  159.900 - á mann í  einbýli.
 
Innifalið:
Flug til og frá Budapest, skattar, gisting á góðum 3*/ 3*+  hótelum  í 4 nætur með morgunverðarhlaðborði. 4 kvöldverðir.  Kynnisferðir um: Vínarborg, Bratislava, Györ,  og Budapest.  Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns. 

Ekki innifalið:
Hádegisverður,  aðgangseyrir á söfn, tónleika og aðrar kynnisferðir en þær er tilgreint eru ofan.   
 
Smelltu hér til að bóka og fá nánari upplýsingar um hótel
 


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur