Sumar við Gardavatnið
25. júli – 1. ágúst 2012
Fararstjóri: Una Sigurðardóttir
Gardavatn er stærsta stöðuvatn Ítalíu. Það liggur í skjóli Alpanna í norðri, í suðri tekur Pósléttan við og staðurinn er margrómaður fyrir náttúrufegurð og fjölbreytni. Fjöll og hamraveggir, vínviður, ólífutré og annar fjölbreyttur gróður, litlar bryggjur, baðstrendur og rómantískir göngustígar meðfram vatninu, ásamt smábæjum með gömlum miðbæjarkjörnum iðandi af mannlífi. Þetta ásamt angan af góðum mat og drykk er það sem einkennir lífið við Gardavatn. Í næsta nágrenni eru fjölskyldu- og skemmtigarðar, vatnasport og útivistarmöguleikar, söfn og sögulegar minjar. Dvalið verður í bænum Malcesine á norðausturströnd vatnsins. Gisting í 7 nætur á góðu 3*+ hóteli skammt frá miðbænum. Boðið verður upp á siglingar um Gardavatn og kynnisferðir til Veróna og Feneyja. Það verður enginn ósnortinn af fegurð vatnsins, smábæjanna með litlum bæjarkjörnum, smáhöfnum og rómantískum gönguleiðum meðfram vatninu, af gróðri, landslagi, stórbrotnum vegamannvirkjum og fagurri fjallasýn til Alpanna. Gardavatn er staður sem allir elska og þangað er hægt að koma aftur og aftur og uppgötva nýja og spennandi staði í hverri ferð.
25. júlí
Flug með Icelandair til Malpensa flugvallar. Flugtak kl. 16:50 lending kl. 22:40 að staðartíma. Ekið sem leið liggur að Gardavatni um 3ja tíma akstur. Dvalið í 7 nætur í hinum undurfagra bæ Malcesine sem stendur við norðuausturenda vatnsins. Í bænum setur Scaligero kastalinn sterkan svip sinn á bæinn og í bakgrunni gnæfir fjallið Monte Baldo. Möguleiki er að taka kláfinn uppá topp fjallsins en þaðan er óviðjafnanlegt útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu Norður-Ítalíu. Bærinn er einstaklega skemmtilegur með þröngum hellulögðum strætum, litlum veitinga-stöðum, kaffihúsum og spennandi sérverslunum og er mikið eftirlæti ferðamanna. Góðar samgöngur eru frá höfninni í Malcesine um Gardavatið vítt og breitt. Dvalið verður á góðu hótelið Hótel Excelsior sem stendur við bakka vatnsins og í göngufæri frá miðbænum. Morgunverðar- og kvöldverðar hlaðborð innifalið í verði.
26. júlí
Deginum varið í að kanna alla aðstöðu í bænum.
27. júlí
Um hádegisbil er boðið upp á hálfs dags kynnisferð til Verona, hinnar fögru, fornu og sögulegu borgar, sem jafnframt er sögusvið ástarsögunnar um Rómeó og Júlíu. Arenan (forna hringleika-húsið), svalir Júlíu, og margt fleira kemur við sögu í gönguferð um gamla bæinn. Þá er gefinn frjáls tími svo að hver og einn geti skoðað sig um á eigin vegum. Kvöldverður á góðum veitinga-stað í miðborginni. Eftir kvöldverð er farið í Arenuna og þess notið að sjá og hlusta á listamenn flytja óperuna CARMEN sem er dásamleg upplifun fyrir augað – eyrað og sálina. Að lokum er ekið til baka á hótelið.
Verð: 19.800 á mann.
Innifalið: Kynnisferð um Veróna. Kvöldverður á völdum veitingastað í miðborg Veróna. ½ líter af vatni, og ¼ af víni húsins. Miði í Arenuna á operuna Carmen. Sæti í D/E hluta. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
28. júlí
Frjáls dagur að hætti hvers og eins. Tilvalið er m.a. til að kíkja á markaðinn sem er á laugar-dögum í Malcesine. Hér er tækifæri að taka kláfinn frá Malcesine uppá fjallið Monte Baldo. Kláfurinn ber okkur upp í um 1.750 m hæð. Þarna er úsýnið óviðjafnanlegt yfir Gardavatnið og nágrenni þess allt frá Ölpunum í norðri til Pó sléttunnar í suðri.
29. júlí
Í boði er sigling um suðurhluta Gardavatnsins. Siglt verður til bæjanna Bardolino og Sirmione sem stendur á tanga syðst við Gardavatnið.
30. júlí
Dagsferð til Feneyja, hinni einu og sönnu drottningu hafsins. Eftir rúmlega tveggja klst. akstur er komið til Feneyja og við tekur um 30 mín sigling að Markúsartorgi. Í stuttri kynnisferð um miðborgina koma Markúsar-kirkjan, Hertogahöllin, síki, gondólar, Feneyjakristall, ótrúleg saga, byggingar og listaverk við sögu.
Verð: 14.900 á mann.
Innifalið: Akstur til og frá Feneyjum. Kynnisferð í Feneyjum. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
31. júlí
Í boði er sigling um norður hluta Gardavatnsins. Siglt verður til smábæjarins Limone og þaðan til Riva, sem er næst stærsti bærinn við vatnið. Einstaklega fallegir bæir hvor með sín einkenni og sinn sjarma.
1. ágúst
Sjálfsagt að njóta lífsins við sundlaugina eða fá sér göngutúr í bæinn. Eftir hádegi er haldið af stað til borgarinnar Bergamo. Þar er dvalið um stund í Bergamo / Alto sem er eldir bæjarhlutinn og stendur hátt uppá á kletti. Fallegur miðaldarbær sem er afar athyglisvert er að skoða. Þar borðum við kvöldverð áður en haldið er áfram ferðinni út á flugvöll í Malpensa. Brottför til Íslands kl 23:40 og lent á Keflavíkurfllugvelli kl 01:55 ( aðfaranótt 2. ágúst ) að staðartíma.
Hotel Excelsior Bay ***+
Via Lungolago Madonnina 13
37018 Malcesine Italy
Sími: 0039-045 740 0380
Hotel Excelsior Bay er mjög gott þriggja stjörnu hótel sem stendur á fallegum og rólegum stað við strönd Gardavatnsins, í stuttu göngufæri frá hinum rómaða miðbæ Malcesine. Á hótelinu eru m.a.: setustofa, veitingastaður og bar. Þar er einnig góður garður með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu, auk líkamsræktaraðstöðu, gufubaði og nuddstofu. Öll herbergi eru loftkæld, með síma, gervihnattarsjónvarpi, hárþurrku og öryggishólfi. (Sjá: http://www.hotelexcelsiorbay.com)
Verð á mann:
Kr. 199.700.- á mann í tvíbýli.
Kr. 233.900 - á mann í einbýli.
Innifalið:
Flug til og frá Malpensa, skattar, gisting á góðu 3*+ hóteli í 7 nætur með hálfu fæði innifalið. Akstur til og frá flugvelli. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:
Hádegisverður, aðgangseyrir á söfn, tónleika og kynnisferðr.
Verð ferðar er miðað við lágmarksþátttöku 20 manns einnig í kynnisferðum.