Vorið á Madeira
10. – 20. apríl
Uppseld !
Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir
Madeira, er stundum nefnd “skrúðgarðurinn í Atlantshafinu” enda með fádæmum gróðursæl og býr yfir einstökum náttúrutöfrum. Eyjan er í Atlantshafinu fyrir utan norðvesturströnd Afríku. Hér ríkir afar þægilegt loftslag allan ársins hring. Innan um tilkomumikil fjöll, vínekrur, ávaxtagarða og fagran hitabeltisgróðurinn hafa eyjaskeggjar skapað hina fullkomnu aðstöðu ferðamannsins. Dvalið verður á góðu 4* hóteli skammt frá höfuðborginni Funchal sem er á suðurströnd eyjunnar. Það sem einkennir borgina öðru fremur eru stórir og fallegir skrúðgarðar með aragrúa fagurra blómategunda sem fátítt er að sjá annars staðar. En borgin hefur fleira að bjóða eins og þröngar krókóttar götur, vinaleg veitinga- og kaffihús og við höfnina vagga sér skip af öllum stærðum og gerðum frá öllum heimshornum. Þegar út fyrir borgina er komið taka við litlir “syfjulegir” bæir og vinaleg sjávarþorp sem gaman er að heimsækja. Íbúar eyjunnar eru heimsþekktir fyrir vínframleiðslu sína en blómarækt, dúkasaumur og körfugerð leikur einnig í höndum þeirra.
10. apríl
Beint leiguflug með Icelandair til Funchal á Madeira. Flugtak kl 8:30, lending kl 14:10. Ekið frá flugvelli á hótelið.
Kvöldverður á hótelinu.
11. apríl
Eftir morgunverð er haldið af stað í hálfsdags kynnisferð um Funchal. Í kynnisferðinni munu farþegar heimsækja líflegan og ekki síður litríka markað heimamanna en þar má sjá ótrúlegt úrval blóma, ávaxta, og grænmetis í öllum regnbogans litum. Þá gefst tækifæri á að heimsækja útsaumsverksmiðju og fylgjast með handbragði starfsmanna þar. Í lok ferðar gefst farþegum tækifæri á að renna sér niður brekku í tágsleða – ekki á hverjum degi sem slíkt tækifæri býðst. (Athugið: sleðaferðin er ekki innifalin í verði ) Að lokum er Saint Francis vínkjallarinn heimsóttur – fyrr á tímum var þetta klaustur og ber þess ennþá greinileg merki. Eftirmiðdagurinn er frjáls. Kvöldverður á hótelinu.
12. apríl
Frjáls dagur í Funchal. Kvöldverður á hótelinu
13. apríl
Dagsferð um austurhluta Madeira Hringferð um eyjum sem þrátt fyrir smæð sína býður upp á mjög fjölskrúðugt landslag. Við ökum í gegn um lítil sjávarþorp og sjáum hvernig eyjaskeggjar rækta grænmeti sitt og ávexti. Leiði liggur frá suðri til norðurs að hæstu hæð eyjunnar Pico do Arieiro sem er 1818 metra yfir sjávarmál. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir eyjuna. Þá er ekið að Ribeiro Frio sem er eiginlega eins og garður með sýnishorni af gróðri eyjunnar og einnig gefst þar einstakt tækifæri á að sjá og njóta útsýnisins yfir dali og fjöll. Næst er ekið að þorpinu Santana á norður hluta eyjunnar sem er þekkt fyrir hin sérstæðu hús sín með stráþakinu. Þar verður stoppað um stund. Hádegisverður borinn fram og farþegum gefinn frjáls tími að skoða sig betur um á staðnum. Á leiðinn til baka er ekið að útsýnisstað á austurhluta eyjunnar og stoppað þar um stund. Kvöldverður á hótelinu.
14. apríl
Frjáls dagur í Funchal. Kvöldverður á hótelinu.
15. apríl
Eftir morgunverð er haldið í þægilega gönguferð í Paradísardalnum. Um 6km göngutúr á göngustíg þar sem gengið er í gegn um suðrænan gróður með tilheyrandi litadýrð og blómaangan.
16. apríl
Frjáls dagur í Funchal. Kvöldverður á hótelinu.
17. apríl
Hálfsdagsferð þar sem haldið verður áfram að skoða þessa fögru eyju. Í þessari ferð heimsækjum við Þrjá áfangastaði. Fyrst er ekið að útsýnishæðinni Pico Do Barrelos þar sem við stoppum og njótum útsýnisins yfir Funchal borgina. Eira do Serrdao er í um 1100 metra yfir sjávarmál og þaðan má sjá Curral das Freiras – Nunnudalinn - og lítið þorp þar sem er byggt í gömlum eldgíg. Í lok ferðar er komið við í litlu sjávarþorpi Camara de Lobos og dvalið þar um stund. Kvöldverður á hótelinu.
18. apríl
Frjáls dagur í Funchal. Kvöldverður á hótelinu.
19. apríl
Kvöldferð. Þar sem farþegar sjá þjóðdansa og söngvasýninu innfæddra á meðan snæddur er kvöldverður með þjóðarréttum eyjarskeggja. Grillað nautakjöt ásamt meðlæti. Skemmtileg kvöldstund sem enginn vill missa af.
20. apríl
Brottfarardagur. Flugtak kl 12:00, lending kl 15:55 í Keflavík að staðartíma.
Hotel Four Views Monumental Lido * * * *
Estrada Monumental, 284 9004 - 541 Funchal Madeira, Portugal
Sími: (+351) 291 724 282 www.monumentallidomadeira.com
Fallegt fjögurra stjörnu hótel staðsett miðsvæði á Lido svæðinu sem er 2,5 km frá Funchal borginni (25 mínútna gangur). Á Lido svæðinu er úrval veitingastaða, bara, kaffihúsa, verslana og verslunarmiðstöðva. Frá hótelinu er afar falleg gönguleið meðfram sjónum skrýdd suðrænum gróðri og fallegum görðum sem eru í blóma allt árið. Á hótelinu eru 168 loftkæld og vel útbúin herbergi með gervihnattarsjónvarpi, öryggishólfi, minibar og hárþurrku á baði. Þar er einnig líkamsræktaraðstaða og heilsurækt (gegn gjaldi), bar, veitingastaður og sundlaugarbar. Kvöldskemmtanir á hverju kvöldi. Sundlaug hótelsins er á 4 hæð þaðan er ótrúlega fallegt útsýni yfir sjóninn og næsta nágrenni. Góð sólbaðsaðstaða og handklæði við sundlaugina fyrir hótelgesti þeim að kostnaðarlausu.
Netverð á mann:
Kr. 237.900 á mann í tvíbýli.
Kr. 289.500 á mann í einbýli.
Innifalið:
Flug til og frá Madeira, skattar, gisting í 10 nætur með hálfu fæði. Kynnisferðir samkvæmt ofangreindri dagskrá. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir á söfn, siglingar, tónleika og aðrar kynnisferðir.
Verð ferðar er miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.