Netklúbbur

Flug til Róm

Róm - Borgin Eilífa

Frábær helgarferðFlug til Rómar
28. október í 4 nætur


Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til borgarinnar eilífu, í beinu leiguflugi í október. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg, sem á ekki sinn líka í fylgd fararstjóra Heimsferða og upplifað árþúsundamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Skoðaðar verða hallir og meistaraverk endurreisnartímans, barokk-kirkjur og stórkostleg meistarverk þeirra Rafaels og Michelangelos.

Við skoðum torgin í Róm, sérstaklega litríkt mannlífið á Piazza Novona og við hinn fræga Trevi brunn. Eyðum kvöldstund í gömlu miðborginni Trastevere og borðum gómsætan ítalskan kvöldverð. Eða einfaldlega að rölta um þessa stórkostlegu borg, drekka í sig mannlífið, njóta veitinga- og skemmtistaða og upplifa hversvegna allar leiðir liggja til Rómar. 

Lengd flugs milli Íslands og Rómar: 4 klst.     
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Ítalska
Tímamismunur: +2 klst. á sumrin, +1 klst. á veturnar


Nýr ferðamannaskattur í Róm
Þann 1. janúar 2011 var settur á nýr ferðamannaskattur í Róm. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli.
Upphæðin er: 3 Eur á mann á dag á 3* hótelum og  4 Eur á mann á dag  á 4* hótelum.
Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn. Sjá nánar á  vefsíðu: http://en.turismoroma.it

Smelltu hér til að bóka


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur