Prag er ótvírætt ein fegursta borg Evrópu!
Heimsferðir bjóða beint flug til Prag, tólfta árið í röð.
27. - 30. september - 3 nætur
4. - 8. október - 4 nætur
Stórkostlegar byggingar, listaverk og sögulegar minjar bera vott um ríkidæmi og völd, baráttu
og hugsjónir, vísindi og listsköpun allt fram til dagsins í dag. Hradcany kastalinn, stjórnarsetur í 1.000 ár, og Vitusarkirkjan sem gnæfa yfir borgina, iðandi Karlsbrúin, gamli bærinn með Staromestsketorgið, þröngar göturnar og Wenceslastorgið; allt eru þetta ógleymanlegir staðir. Ekkert jafnast á við að rölta um götur Prag og drekka í sig mannlífið og söguna. Heimsferðir bjóða nú lægra verð til Prag en nokkru sinni fyrr og úrvals þriggja og fjögurra stjörnu hótel auk spennandi kynnisferða með íslenskum fararstjórum Heimsferða.
Lengd flugs milli Íslands og Prag: 4 klst
Gjaldmiðill: Czech Koruna (CZK)
Tungumál: Tékkneska
Tímamismunur: +2 klst. á sumrin, +1 klst. á veturnar
VERSLANIR og TAX FREE
Verslanir eru almennt opnar frá 10:00-18:00 en margar ferðamannaverslanir eru opnar lengur. Flestar verslanir í miðborg Prag eru opnar alla laugardaga og margar á sunnudögum til kl. 18:00. Athugið að opnunartími verslana er breytilegur. Margar vinsælar fataverslanir t.d HM eru í Prag og kristall, listmunir og flest sem hugurinn girnst er að finna í búðum borgarinnar.
Margar verslanir bjóða upp á Tax-Free (endurgreiðslu virðisaukaskatts). Munið að fylla vel út alla tilskilda pappíra frá versluninni áður en þið framvísið þeim ásamt vegabréfi og brottfararspjaldi á flugvelli, áður en farið er í gegnum passaskoðun.
SAMGÖNGUR
Neðanjarðarlestarkerfið - METRO, er gott og einfalt í Prag, aðeins 3 línur. Sporvagnar eru líka þægilegir í notkun og ganga þeir um alla borg. Kynnið ykkur bestu möguleikana milli gististaðar ykkar og miðborginni.Stakir miðar sem gilda í alla almenningsvagna og lestar kosta 24 CZK (30 mín) eða 32 CZK (90 mín)*. Þeir eru seldir á flestum hótelum, á blaðsölustöðum, í neðanjarðarlestarstöðvum,sjálfsölum við biðstöðvar og víðar, en ekki í vögnunum sjálfum. Ath. að stimpla verður miðana í þar til gerðum kössum inni í vögnunum eða á biðstöðvunum áður en haldið er af stað. Á sölustöðum METRO og í sjálfsölum er einnig hægt að kaupa miða sem gilda í lengri tíma. (*verð í febrúar 2012)
MATUR OG SKEMMTUN
Fjöldi góðra veitingastaða er í Prag og gestir munu ekki eiga erfitt með að finna “rétta” staðinn. Hægt er að skoða alla helstu veitingastaði Prag inn á þessari vefsíðu: www.squaremeal.cz
TÓNLEIKAR – MENNINGARLÍF
Það er gríðarlega fjölbreytt menningarlíf í Prag og tónleikar og listviðburðir alla daga víða í borginnni. Hægt er að kaupa miða við innganginn eða á bókunarstofum TicketPro sem eru víða(einnig hægt að versla á netinu www.ticketpro.cz). Frægustu tónleikasalirnir og leikhúsin eru Rudolfinum, aðsetur fílharmóníunnar í Prag, Estates Theatre, National Theatre, State Opera og Obecní Dum (menningarhúsið). Athygli er vakin á afar áhugaverðum brúðuleikhúsum, “svörtum” leiksýningunum (Black Theatre) og látbragðsleikjum þar sem tungumálakunnátta er ekki lykilatriði.
ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
Það er fjöldi áhugaverðra staða sem ekki má fara á mis við þegar maður kemur til Prag. Hér nefnum við nokkra:
Staromestské námestí. - Gamlabæjar torgið. Hér er hjarta gamla bæjarins, klukkuturninn frægi, Týn kirkjan o.fl.
Václavs torgið – Sögusvið margra kunnra atburða 20. aldar, glæsilegt þjóðminjasafnið og iðandi mannlíf.
Karlsbrúin – kennd við Karl IV, meistaraverk frá 14. öld, endalaus straumur fólks á gangi allan daginn.
Kastalinn – Pražský hrad, hið mikla mannvirki gnæfir yfir borgina, stjórnarsetur í margar aldir. Ótrúleg saga og listir.
Vitus dómkirkjan í kastalanum. Stórkostlegt dæmi um gotneskan arkitektúr, byggingasaga allt frá 14. öld.
Gullna gatan er innan kastalaveggjanna. Litlar listasmiðjur og búðir í litlum húsum. Hér bjó Kafka um tíma.
Strahov klaustrið, ofan við Kastala, með glæsilegu heimspeki- og guðfræðisalina. Hér var stærsta bókasafn Mið-Evrópu.
Gyðingahverfið –Josefov. Samkunduhúsin (synagogur) með gyðingasögusöfnum, kirkjugarðurinn frægi og margt fl.
Nikulásarkirkjan í Malá Strana. Eitt fegursta dæmi um evrópskan barokkstíl.
Klementinum. Núverandi þjóðarbókasafn, áður Jesúítaklaustur. Tónleikar oft í speglakapellunni.