Netklúbbur


Budapest - Marþonhlaup í lok september

Budapest 23.-27. september
   -Maraþonhlaup þann 26. september-   
 

Frábær helgarferð til Budapest þann 23. september í 4 nætur, úrval gististaða í boði!
**Hlaupaáhugafólki er sérstaklega bent á þessa ferð þar sem maraþonhlaup fer fram í borginni  þann 26. september.**

Borgin - perla Ungverjalands 
Budapest er ein eftirsóttasta borg Evrópu og yndisleg heim að sækja að hausti þegar hún skartar sínu allra fegursta. 
Veðurfar er milt og gott á þessum tíma, þegar lætur af sumri og haustið tekur við, meðalhitastig á þessum tíma er gjarnan um 14-21°C.
Borgin er staðsett á einstökum stað við Dóná, sem skiptir borginni í tvennt, Búda sem er byggð í hlíð vestan megin við ána og er eldri hluti borgarinnar og hinsvegar Pest.  Í Pest er stjórnsýslan og verslunarhverfið, þar eru einnig leikhúsin og Óperan.
Menningarlífið er mjög fjölbreytt og alla daga er hægt að velja um fjölda leiksýninga, tónleika eða listsýninga.
Ungverjar eru orðlagðir fyrir gestrisni og hér er frábært að upplifa veislu í mat og drykk og njóta lífsins í þessari heillandi og fögru borg í fylgd með fararstjórum Heimsferða.
Fjölbreytt gisting í boði auk skemmtilegra kynnisferða. 

Hlaupið - 26. september
Þann 26. september fer fram hið árlega maraþonhlaup í borginni, (nánari upplýsingar hér) . 
Jafnframt er boðið upp á styttri hlaup fyrir aðstandendur; 7,5 km hlaup og 3,5 km skemmtiskokk.  Einnig er boðið upp á maraþonboðhlaup (relay) þar sem 3-5 þátttakendur skipta á milli sín að hlaupa alla maraþonleiðina. 
Hlaupaleiðin er að mestu á jafnsléttu nema þar sem farið er yfir brýrnar yfir Dóná.  Hlaupið er meðfram sögufrægum byggingum í borginni og meðfram Dóná. 
Á 30 stöðum á hlaupaleiðinni verða hljómlistarmenn sem halda uppi fjöri meðan á hlaupinu stendur.  
Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið að slaka á í Széchenyi Bath, einu frægasta baðhúsi í Budapest, en Ungverjar eru þekktir fyrir einstaka baðhúsamenningu og það er ógleymanlegt að heimsækja eitt slíkt meðan á dvöl stendur í borginni. 
Veðrið í Búdapest á þessum árstíma er yfirleitt kjörið til hlaupa, algengasta hitastig í lok september er á bilinu 14 – 21°C. 
Búist er við um 3.500 þátttakendum í heilu maraþoni og 600 liðum í maraþonboðhlaupi þannig að rúmlega 4.000 manns verða í brautinni í einu. 
Skráning í hlaupið er ekki á vegum Heimsferða en allar upplýsingar um hlaupið og skráningu er að finna á heimasíðu hlaupsins: Marþonhlaup í Budapest! 

Gististaðir í boði:

Hotel Mercure Duna***
verð á mann í tveggja manna herbergi m/morgunverði kr. 79.900.

Hotel Platanus***
verð á mann í tveggja manna herbergi m/morgunverði kr. 84.380.   

Hotel Star Inn Centrum***
verð á mann í tveggja manna herbergi m/morgunverði kr. 87.080.

Ekki missa af þessu tækifæri - Bókaðu strax!







 


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur