Kynnisferðir Heimsferða 2012
Ferð 1: Ljubljana - gönguferð
· Brottför um kl. 09:30. Um 1 ½ - 2 klst.
Ljubljana, höfuðborg Slóveníu er ótvírætt ein af leyndu perlum Evrópu. Í borginni búa um 300 þús.
manns, og miðborgin iðar af lífi, enda óvenju hátt hlutfall af ungu fólki, stúdentum og listamönnum
sem búa þar. Yfir borginni gnæfir Ljubljana kastali, um miðborgina liðast litla áin Ljubljanica og
beggja vegna við hana er mikið líf og fólk í alls kyns erindagjörðum, verslanir, listamannasmiðjur,
kaffihús og veitingastaðir. Í gönguferð um miðbæinn kynnumst við helstu kennileitum og byggingum
og fræðumst um lífið í bænum. Við Presernov torg og brýrnar þrjár, liggja leiðir til allra átta. Við
sjáum dómkirkjuna, hinn líflega og stóra markað, skemmtilegar götur og byggingar gamla bæjarins,
förum að Kongresni torgi og sjáum Fílharmoníuna, háskólann, þinghúsið, óperuna, þjóðminjasafnið
og ýmislegt fleira áður en gönguferðin endar.
Innifalið í verði: Íslensk leiðsögn.
Ferð 2: Fjallaperlan Bled
· Brottför um kl. 10:00. Um 6 klst.
Í margra huga er fjallaperlan Bled í Slóveníu einn fegursti staður Alpanna. Bled er lítill ferðamannabær við samnefnt vatn í faðmi fallegra fjalla í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Ljubljana. Í miðju vatninu er lítil eyja sem setur sérstakan svip á landslagið en myndin fullkomnast af kastalanum sem gnæfir uppi á kletti fyrir ofan. Í Bled er farið í stutta kynnisferð um staðinn og upp í kastalann, og siglt er á hinum þekktu “pletnabátum” útí eyju. Frjáls tími til að fá sér göngutúr um fallegt landið, rölta um bæinn og fá sér eitthvað í svanginn, t.d. kaffi og “kremsnita” (sérstök kaka frá Bled) áður en haldið er til baka.
Innifalið í verði: Ferðir, sigling og íslensk fararstjórn.
Ferð 3: Postojna hellarnir og Predjama kastali
· Brottför um kl.10:30. Um 5 klst.
Dropasteinshellarnir í Postojna eru meðal stærstu, fegurstu og frægustu neðanjarðarhella í heimi. Yfir 20 km af göngum, sölum og náttúrulistaverkum . Í milljónir ára hafa neðanjarðarár grafið sér leið um karst jarðveginn og eru enn að. Vatnið sem seytlar niður, myndar síðan nokkurs konar grýlukerti sem verða að ótrúlegum og litríkum listaverkum. Niðri í hellunum er einnig að finna hina mjög sjaldgæfu og forvitnilegu veru, mannfisk (Proteus Anguinus). Ekið frá Ljubljana í um 1 klst. Farið er niður í hellana í ferðamannalest, um 4 km. Þá tekur við gönguferð í 1 – 1 ½ km á góðum stígum. Örlítill hæðarmunur en allir sem eiga ekki í erfiðleikum með gang fara þetta léttilega. Í lokin er lestin tekin upp aftur og alls tekur þessi ferð rúmlega klukkutíma. Haldið er áfram til Predjama kastala sem er í um 12 km fjarlægð frá hellunum. Kastalinn er byggður inn í klettavegg og einstakur í sinni röð. Inni er afar áhugavert safn. Eftir skoðunarferð um kastalann er haldið til baka til Ljubljana.
Innifalið í verði: Ferðir, aðgangseyrir í hella og kastala og íslensk fararstjórn.
Bóka þarf kynnisferðir á Íslandi fyrir brottför til að tryggja sér sæti. Lágmarksþátttaka í ferð með íslenskumælandi fararstjóra er 20 manns.
Nákvæmur brottfarartími í ferðir verður auglýstur á staðnum.
Ath. Farþegar fá upplýsingar um hvar þeir verða sóttir fyrir kynnisferðirnar úti hjá fararstjórum, en yfirleitt er um 3-4 staði að ræða svo þetta taki fljótan tíma og hægt sé að láta hverja kynnisferð fyrir sig byrja sem fyrst án þess að þurfa koma við á mörgum hótelum áður.