Netklúbbur


Ljubljana í Slóveníu


Hin leynda Perla

27. apríl  - 1. maí í 4 nætur

ljubljana_kastali_240x160

Slóvenía „litla fallega og friðsæla landið sólarmegin í Ölpunum" er staður sem hefur slegið rækilega í gegn hjá Heimsferðafarþegum undanfarin ár. Slóvenía er nyrsta og jafnframt þróaðasta land fyrrum Júgóslavíu.

Nú bjóða Heimsferðir beint flug til höfuðborgarinnar Ljubljana sem er ótvírætt ein af leyndu perlum Evrópu sem allt of fáir þekkja.

ljubljanaÍ Ljubljana búa um 300.000 manns. Á hæð ofan við bæinn gnæfir Ljubljana kastali með stórkostlegu útsýni yfir borgina. Áin Ljubljanica liðast um borgina og er gamli bæjarhlutinn í Ljubljana staðsettur á milli kastalans og árinnar.
Það er einstakt að rölta með ánni og fylgjast með iðandi mannlífinu, fjöldi stúdenta og ungs fólks setur sérstakan svip á borgina en borgin er mikil háskólaborg og þarna er staðsettur virtur tónlistarháskóli og háskóli.

Miðbærinn er fullur af kaffi- og veitingahúsum og skemmtistöðum. Mikið menningar- og listalíf er í borginni; leikhús, tónleikahús og fjöldi listamanna með vinnustofur og gallerí.  Í gamla bæjarhlutanum eru margir veitingastaðir, barir , kaffihús og skemmtilegar verslanir. Má þar nefna t.d saltverslun þar sem er hægt að kaupa skemmtilegar gjafavörur  t.d gróft matarsalt, saltað súkkulaði, baðsalt og baðskrúbb og margt fleira sniðugt, einstaklega mjög skemmtileg verslun.

Í Ljubjlana eru margir skemmtilegir miðbæjarmarkaðir með fallegu handverki og mat og má þá nefna t.d. markaðinn sem er staðsettur meðfram ánni en hann er alltaf opinn á sunnudagsmorgnum.  Þangað kemur fólk frá nærliggjandi sveitum og bæjum  sem selur vörur sínar og þar er einnig ungt listafólk að selja sína vörur.  Virkilega gaman er að kíkja á markaðinn og skoða hvað er í boði , bæði nýtt og gamalt.

Margar verslanir eru í Ljubljana, bæði sérverslanir af öllu tagi og stórar verslunarmiðstöðvar eins og t.d. City Park og BTC, en þær eru staðsettar aðeins út fyrir miðbæinn og tekur einungis 5 - 10 mínútur með leigubíl að fara þangað. Þar eru fjölmargar verslanir með þekkt vörumerki eins og  t.d H&M , Zara, Mango og fleiri verslanir. Einnig mjög góðar og ódýrar skóbúðir. Verðlag í Ljubljana er mjög hagstætt og góður aðbúnaður fyrir ferðamenn.
 
Smelltu hér til að bóka


Bókaðu á netinu

Bæklingar



 

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur