Dresden
27. apríl – 1. maí
Dresden höfuðborg Saxlands er einstaklega fögur borg er stendur á bökkum árinnar Elbu. Borgin er sannkölluð perla og þekkt fyrir ægifagrar og glæsilegar barokk byggingar, tónlist og fjölskrúðugt listalíf. Borgin varð fyrir miklu tjóni í síðari heimstyrjöldinni en hún reis úr rústunum á sjöunda og áttunda áratugnum og hefur nú endurheimt titil sinn sem fegursta barokkborg heims. Í Dresden blómstrar menning og listir, þar eru þekkt óperuhús, tónleikasalir, listasöfn stórkostlegar byggingar og fallegir garðar. Jafnframt er hún þekkt háskólaborg vísinda- og viðskiptamiðstöð. Það er margt athyglisvert að skoða í Dresden, eins og Frúarkirkjuna sem er tákn Dresden borgar. Hún er í barokk-stíl reist á átjándu öld. Kirkjan gjöreyðilagðist í loftárásunum 1945 og voru rústir einar í nær 50 ár. Endurbyggingu hennar lauk 2005. Dresdner Zwinger kastalinn í miðborg Dresden. Hann samanstendur af nokkrum byggingum í barokkstíl. Þá má nefna Semperóperuna sem er eitt frægast óperuhús Þýskalands sem reist var af Gottfried Semper og var konunglegt leik- og óperuhús. Dómkrikjan í Dresden er afar fögur kirkja í barokk-stíl og stærsta kirkja Saxlands. Dresden er ein grænast borg Evrópu fjöldi garða og útivistarsvæða eru í borginni og þá er notalegt að fá sér göngutúr meðfram ánni eða jafnvel bregða sér í siglingu. Í gamla bænum í kring um Altmarkt torgið og Prager götuna er úrval af verslunum veitingastöðum söfnum og litlum sérverslunum. Borgin hefur allt að bjóða sem ferðamanninn dreymir um og svo miklu meira hún er eiginleg eins og fullkomin konfektmoli sem maður getur hugsað sér að njóta sem lengst og síðan aftur og aftur.
27. apríl
Flogið með Travel Service ( tékkneskt flugfélag ) til Prag. Flugtak frá Keflavík er kl 10:50. Lending í Prag kl 17:00 að staðartíma. Frá Prag flugvelli er ekið til Dresden tæplega 2ja tíma akstur. Dvalið í Dresden í 4 nætur. Kvöldverður á hótelinu.
Hotel Am Terrassenufer * * * *
Terrassenufer 12, 01069 Dresden sími: 0049 351 4409500
Gott 4* hótel sem stendur á bökkum Elbu. Í göngufæri frá helstu byggingum borgarinnar og gamla miðbænum. Veitingastaður og bar. Á hótelinu eru 196 herbergi með baði, minibar gervihnattar-sjónvarpi og öryggishólfi. Internetaðgengi gegni gjaldi. Reiðhjólaleiga. Þetta er reyklaust hótel.
28. apríl
Kynnisferð um Dresden. Í þessari ferð kynnumst við þessari merku listaborg, skoðum dýrgripi hennar og fræðumst um sögu hennar. Í lok ferðar er farið í 1,5 tíma siglingu á ánni Elbu. Efritmiðdagurinn er frjáls að hætti hvers og eins. Kvöldverður á hótelinu.
29. apríl
Kynnisferð til miðaldarborgarinnar Meissen sem er 25 km norðaustan við Dresden. Borgin er einkum þekkt fyrir postulíns framleiðslu sína. Þekktasti framleiðandinn er Staatliche Porzellan Manufaktur Meissen GMBh hóf starfsemi sína 1710. Postulínið er framleitt með gæðamerkinu svörtum sverðum sem lögð eru í kross – og er eitt elsta vörumerkji heims. Ferðin hefst á göngu í geng um miðaldarborgina Meissen þá verður komið við hjá postulíns framleiðanda og við sjáum listamenn við vinnu sína. Einnig gefst tækifæri á að versla hjá framleiðandanum. Kvöldverður á hótelinu.
30. apríl
Frjáls dagur til að njóta hver á sinn hátt – eitt er víst það er af nógu að taka í þessari fallegu borg. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður í Sophien Keller sem er framúrskarandi skemmtilegur miðaldastaður í miðbænum - í anda Ágústar sterka, kjörfursta af Saxlandi.
1. maí
Um hádegisbil er ekið frá Dresden til Prag flugvallar. Flugtak er kl 17:00 og lending í Keflavík er kl 18:50
Netverð á mann:
Kr. 159.900 á mann í tvíbýli.
Kr. 176.800 á mann í einbýli.
Innifalið:
Flug til og frá Prag, skattar, gisting í 4 nætur með hálfu fæði. Kynnisferð um Dresden og Meissen. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir á söfn,kastalann, tónleika og aðrar kynnisferðir.
Verð ferðar er miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.