Heimsferðir bjóða nú beint flug til Búdapest, einnar eftirsóttustu borgar Evrópu, ellefta árið í röð.
27. september - 1. október
19. október - 23. október
Smelltu hér til að bóka!!
Haustin eru vinsælasti tíminn til að heimsækja borgina en þá iðar hún af lífi auk þess sem menningarlífið er með fjörugsta móti. Búdapest stendur á
einstökum stað við Dóná sem skiptir henni í tvennt: annarsvegar er Búda, eldri hluti borgarinnar, sem stendur í hlíð vestan árinnar og hinsvegar Pest.
Í Búda eru margar stórfenglegar byggingar, listaverk og sögulegar minjar. Má þar nefna Kastalahverfið, sem gnæfir yfir borgina og hina stórfenglegu Matthíasarkirkju, rústir Aquincum hinnar fornu borgar Rómverja, hellana og Gellért-hæðina með hinni 14 metra háu frelsisstyttu. Frá henni er frábært útsýni yfir Pest sem byggð er á sléttunni austan megin árinnar.
Í Pest er verslunarhverfið, leikhúsin og óperan. Þar blómstrar menningarlífið, en alla daga má velja um fjölda leiksýninga, tónleika eða listsýninga. Pest státar einnig af hinu fræga hetjutorgi og þinghúsinu, sem er hið þriðja stærsta í Evrópu. Ungverjar eru orðlagðir fyrir gestrisni og í Búdapest er frábært að njóta góðra veitinga og kynnast þessari heillandi og fögru borg í fylgd með fararstjórum Heimsferða.
Lengd flugs milli Íslands og Búdapest: 4 klst.
Gjaldmiðill: Forint (HUF)
Tungumál: Ungverska
Tímamismunur: +2 klst. á sumrin, +1 klst. á veturnar
Menningarlífið
Í Búdapest er öflugt menningarlíf. Má þar helst nefna Tónlistarakademíuna, Music Academy, sem Franz Liszt stofnaði, Pestkonsertsalinn, þar sem óperettusýningar eru haldnar frá apríl út október og síðast en ekki síst Óperuna í Búdapest, þar sem Gustav Mahler og Puccini hafa m.a. haldið á tónsprotanum. Óperan er ein sú fegursta í Evrópu og ferð þangað einsök upplifun.
Söfnin
Söguna má víðast skynja í Búdapest. Ómissandi er að koma við í einhverju af fjöldmörgum söfnum borgarinnar og kynnast ríkri menningu hennar: Aquincum safnið og rómverskum rústum, Listasafninu við Hetjutorgið, Þjóðlistargalleríinu við Búda-höllinni, Þjóðarsafninu, þar sem sjá má yfirlit um sögu þjóðarinnar frá stofnun hennar og Vínsafninu, en þar eru sýndar og seldar um 400 tegundir ungverskra vína sem gestum er boðið að bragða á. Menning borgarinnar er gríðarlega lífleg og við hvetjum farþega okkar til að upplifa hana.
Út að borða
Hér finnur þú veitingastaði af gamla skólanum með dæmigerðri ungverskri matargerðarlist, sem er ómissandi að prófa, innanum nýja glæsilega tískustaði þar sem fólk fer til að sýna sig og sjá aðra. Gundel er einn frægasti staðurinn, fornfrægur með frábærri þjónustu, ef eitthvað alveg sérstakt stendur til, er staðsettur við Hetjutorgið. Á síðustu árum hefur opnað fjöldi nýrra spennandi staða í hæsta gæðaflokki. Má þar nefna Hemingway, Articsoka, Absint, Biarritz, Museum, Avant Garde, Bagolyvár og Cosmo. Hér er hægt að lifa í veislu í mat og drykk á ótrúlegu verði, mun hagkvæmara en við þekkjum hér á Íslandi. Með ferðagögnunum þínum fylgja upplýsingar um veitingastaði sem Heimsferðir benda á.
Verslun
Það er gott að versla í Búdapest, hvort sem þú leitar að fatnaði, listmunum, málverkum, leirlist, antík, skófatnaður eða postulíni. Í kringum Vaci utca göngugötuna í Pest er fjöldi góðra verslana og í litlum hliðargötum þaðan frá þar sem þú finnur allt milli himins og jarðar, hvort sem þú leitar að fatnaði, listumunum eða antík. Stórglæsilegar stórverslanir er einnig að finna, s.s. Westend við Hilton hótelið, Flavius Center, Fontana eða Mammut Center og ekki má missa af því í Búdapest að koma við á flóamarkaði þar sem ótrúlegustu hluti má finna.
Kastalahverfið
Kastalahverfið er hjarta gamla konungsdæmsins og einn fegursti hluti Búdapest. Þar er Konungshöllin, Torg heilagrar þrenningar, Matthíasarkirkjan, Turnar fiskimannanna með ótrúlegu útsýni yfir borgina, Turn Maríu Magdalenu og hellarnir, sem fyrstu íbúar svæðisins dvöldust í. Fólk kemur aftur og aftur í Kastalahverfið.
Ekki missa af…
Það er fjöldi áhugaverðra staða sem ekki má fara á mis við þegar maður kemur til Búdapest. Hér nefnum við nokkra:
Citadella: Gamalt virki á Gellért hæðinni í Buda. Reist af Austurríkismönnum. 14 metra há “Frelsisstyttan” gnæfir yfir og héðan er ótrúlega fallegt útsýni yfir borgina.
Hetjutorgið (Hösök tere): Hér voru haldnar mikilfenglegar hersýningar á kommúnistatíma. 36 m. há súla með Gabriel erkiengli sem birtist Stefáni og býður honum konungskórónu. Hér er einnig hið fræga baðhús Széchenyi.
Óperuhúsið, eitt það fegursta í Evrópu.
Þinghúsið, sem byggt er á bökkum Dónar, stórfengleg bygging.
Kastalinn.
Kirkja heilags Stefáns
Flóamarkaðinum, Ecseri Flea Market, alla föstudaga.
Szentendre, ótrúlega fallegt listamannaþorp í nágrenni við Búdapest.
Nokkrar góðar vefslóðir:
http://www.budapestinfo.hu/
http://www.hungarytourism.hu/
Kort - hótelstaðsetningar og fl.